sunnudagur, 14. desember 2008

Nenni ekki að læra :/

Orkan er búin!!! (ekki það að hún hafi verið neitt ofur mikil þessa önnina)

Ég nenni bara engan veginn að læra :/ Það er svo erfitt að einbeita sér þegar það er svona stutt í að maður fái loksins að sjá fjölskylduna sína og vini aftur :)

Afmælisdagurinn hans Gunna var rosa fínn :) Tókum því bara rólega hér heima, hann fékk afmæliskökuna sína og svo fórum við út að borða og röltum aðeins um bæinn og settumst inn á 2 pöbba. Vorum samt komin heim bara um 9 hehe... Bara voða róleg á því :)

Afmælisbarnið að skera kökuna sem var skreytt með nammi og kertum ;)

Vi ses...

~ 4 ~

* Nýjar myndir í desember albúmi *

föstudagur, 12. desember 2008

Það er ...

B Ú I Ð ! ! ! ! ! ! ! !

Verkefnið kláraðist og var skilað í dag :) þvílíkur léttir VÁ!!!!!!!!!!!!!!! :) :) :)
Eigum bara smotterí eftir að proces analyse-unni og þá er þetta allt búið!

Framundan er 3 daga helgi :) og Gunni á afmæli á morgun! Ætlum að njóta dagsins með því að læra EKKERT og gera e-ð skemmtilegt í tilefni dagsins.

Ég er búin að vera ótrúlega mikil húsmóðir síðan ég kom heim úr skólanum í dag hehe... Það var svo gott að geta gert e-ð annað en að læra :) Ég fór í búð, tók utan af rúminu og viðraði, skellti í vél, vaskaði upp, tók úr vélinni og hengdi upp, bakaði köku, eldaði matinn og gekk frá eftir matinn (vaskaði sem sagt aftur upp).

Eitt alveg ótrúlegt... Þegar ég tók úr vélinni þá hafði einhvern veginn ALLUR þvotturinn náð að fara inn í annað sængurverið!! Heil vél full af þvotti inni blessaða sængurverinu. Ekkert smá erfitt að taka þetta allt út til að hengja upp!! Magnað hvað þessum þvotti tekst :P

Planið fyrir restina af helginni er bara að læra smá, þvo þvott, strauja og byrja að taka til það sem við ætlum að hafa með heim :) Á mánudaginn ætla ég svo í smá leiðangur í bæinn og svo þrífa íbúðina. Ekki hægt að skilja hana eftir alla í rúst!!!

Svoooooo.... á fimmtudaginn er það bara Í S L A N D :) hlakki hlakki .....

Trillarnir mínir eiga líka STÓR afmæli í dag :) eru orðin 6 ÁRA :O Ótrúlegt hvað tíminn líður hratt. Finnst ekkert smá stutt síðan þau fæddust :) Pínkuponsu lítil og sæt!!!!!!!!!!!!!! ji þau voru svo lítil fyrstu jólin :) sváfu bara í vöggunum sínum svooooo lítil :) Núna eru þau bara tannlaus og sæt og aðeins meira fjör í þeim en fyrir 6 árum ;)

Hlakka til að sjá ykkur!

~ 6 ~

þriðjudagur, 9. desember 2008

Spennan að drepa mig!!!

Það er orðið ótrúlega erfitt að einbeita sér!!! Það eina sem kemst að í hausnum á mér að ég er að koma heim eftir 9 DAGA :)
Verkefnið gengur alveg ÓTRÚLEGA vel!!! Erum nánast búin :) bara fínpúss og smotterí eftir. Ætti allt að vera BÚIÐ fyrir helgi og þá get ég nýtt helgina í að þvo og byrja að PAKKA :)

Hlakka líka ótrúlega mikið til 19.des úfff... það verður svo dekurdagur!!!!!!!!! Fer í andlitsbað, litun og plokkun, klippingu og litun mmmmmmmmmmmm............. Þá verð ég kannski húsum hæf aftur ;) Greyið Gunni búinn að þurfa að horfa upp mig óklippta og sjúskaða síðustu vikur hehe...

Lítið að frétta annars...

Sjáumst eftir 9 daga :)

laugardagur, 6. desember 2008

MTV projekt

Það styttist og styttist í skiladag!!! Pínu stress í gangi en ég held að þetta muni allt smella saman í næstu viku. Held að það eigi frekar eftir að vera erfitt að fara ekki yfir 80 blaðsíðna takmarkið heldur en hitt. Ótrúlegt aukaefni sem fylgir svona verkefni.
Ég hlakka alveg ótrúlega mikið til að skila þessu inn ... Úfff er alveg komin með nóg af spekúleringum um fyrirbura og öllu sem því fylgir. Held að ég viti orðið of mikið um þetta!!
Samt sem áður mjög spennandi verkefni og ég er mjög ánægð með þetta val okkar :)

Við skelltum okkur í smá jólaverslunarleiðangur í gær. Náðum að kaupa nokkrar jólagjafi og smá jolaskraut í íbúðina :) Maður verður nú að skreyta smá!
Það er orðið rosa fínt hjá okkur og jóló :)

Afmælisgjöfin hans Gunna mætti líka í gær :) Ég keypti á hann jólaföt og ég held að það hafi nú bara tekist vel! Hann er alla vegana rosa sætur í þeim :)

Næsta vika verður strembin enda þarf verkefnið að KLÁRAST! skiladagur er á mánudaginn eftir viku. Þá tekur við annað "verkefni" (process analyse) sem á að skilast 18.des en við höfum ákveðið að reyna að klára það strax mánudaginn 15. sitja við það eins lengi og við þurfum. Þá hef ég 2 daga til að pakka og þrífa íbúðin og svona stúss sem þarf að klárast áður en við förum HEIM :)

Við fáum líka lítinn stúf í heimsókn til okkar næsta föstudag sem ætlar að fá að gista hjá okkur :) Það verður bara gaman að fá lítinn gest!

Jæja nóg blaður í bili

~ 12 ~

þriðjudagur, 2. desember 2008

Bið endalaus bið...

... sem bara styttist ei neitt.
Nú er hver dagur svo leng'að líða,
mér leiðist skelfing að þurf'að bíða.
Langt dæmalaust langt,
er sérhvert augnablik nú.
Ég gæti sagt ykkur sögu ljóta
um sumar klukkur sem liggj'og hrjóta.

Alveg sammála henni Svölu núna ;)

Mig langar að vera BÚIN með verkefnið og process analyse og komast heim í FRÍ.

Ég hlakka svo til, ég hlakka alltaf svo tiiiiiil.....

~ 15,5 ~

sunnudagur, 30. nóvember 2008

1. í aðventu :)

Ótrúlegt hvað tíminn líður :) komum heim í þarnæstu viku!!!!!!!!!!!!!!!
Helgin er búin að vera æðisleg fyrir utan að ég er AFTUR komin með blöðrubólgu urrrrrrrrrrrrr............. :(

Ég fór í Julefrokost með deildinni minni á föstudagskvöldið og það var svaka stuð!!! Jón Ingi fór á kostum hahahah...
Verð nú samt að segja að þetta var nú ekki fínasta jólahlaðborðið ;) Maturinn var alveg fínn... Samt ekkert voða mikið úrval. Og haldiði að það hafi ekki verið PLAST diskar og hnífapör LIKE ALWAYS hérna!!!
Hvernig á maður að borða kjöt með plast gaffli og hníf?? ég bara spyr!
Þetta var samt mjög skemmtilegt kvöld og allir í rosa góðu stuði :

Á laugardaginn var svo frí frá lærdómnum hjá okkur :) við skelltum okkur í bæinn um hádegi og löbbuðum um og kíktum í nokkrar búðir og fengum enn meiri jól í augun.
Ég keypti mér gallabuxur, hlýrabol, belti og jólakjól :) svo fengum við okkur að borða og löbbuðum aðeins meira. Sáum líka þegar það var kveikt á jólatrénu :)
Kvöldið var svo bara rólegt, horft á tv-ið og Gunni baka kanelsnúða! :) svo myndarlegur hehe...

Í dag er ég svo búin að koma nákvæmlega ENGU í verk... :/ fórum reyndar í Netto og þrifum íbúðina. Þarf að vera ofurdugleg að læra á morgun!!!! Efast um að ég fari í skólann út af þessu veseni á mér :( en pensilínið hlýtur að fara að gera sitt! Enda ekkert smá sterkur viðbjóður þar á ferð.

Hlakka til að sjá ykkur bráðum :)

~ 18 ~

þriðjudagur, 25. nóvember 2008

Arbejdsdag :)

Í dag var vinnudagur hjá grúbbunni minni þar sem við höfðum enga tíma í skólanum. Við hittumst um 10 heima hjá Anthony. Ég tók strætó og krossaði fingur að ég myndi lenda á réttum stað ;) sem tókst!!! Ég var komin frekar snemma þar sem ég gerði ráð fyrir um 30mín "villast" tíma. Kl.10 voru allir mættir og við byrjuðum að skrifa.
Það er búið að ganga nokkuð vel og ég er búin að skrifa um 5bls sem er nokkuð gott miðað við marga í grúbbunni ;) Hef meira að segja fengið hrós frá þeim fyrir góð skrif og það á DÖNSKU *mont* *mont*

Við erum nú reyndar enn hérna og einbeitingin er eiginlega bara alveg búin hjá mér.... Ég er bara að bíða eftir því að við förum að elda og svo get ég farið heim :)

Annars er ég rosalega sátt við grúbbuna mína :) mjöööög fínir krakkar!

Anthony býr á kollegíi sem við erum búin að sækja um og íbúðin er alveg ótrúlega fín. 49m2, eiginlega raðhús á 3pöllum og með svölum (sem mér finnst STÓR plús).
En annars erum við á lista fyrir nokkrar kollegí íbúðir og bara að vona að við fáum góða íbúð fyrir febrúar :)

Það snjóað í gær :) alveg jólasnjókoma!!! Ég var alveg að fíla það í botn hehe... Labbaði á móti Gunna upp í skóla og fór svo aftur í göngutúr út í búð seinna um kvöldið hehe... Í dag er bara skítakuldi en æðislegt veður. Á morgun á svo að hlýna og byrja að rigna :( Verður ekki örugglega snjór heima um jólin?????

Það er allt gott að frétta af okkur, bara brjáluð verkefnavinna og um að gera að klára þessi verkefni svo við komums í langþráð jólafrí :)

Kossar og knús

~ 23 ~

föstudagur, 21. nóvember 2008

Komin helgi AFTUR :)

Vonandi að hún verði nú betri en sú síðasta!!!!!

Vikan er búin að vera fín eða eftir að ég komst loksins aftur á lappir :) Ég fór með grúbbunni minni upp á spítala í morgun að skoða fyrirburadeildina.
Það var alveg magnað að sjá þetta svona með eigin augum :) fengum meira að segja að fara inn á stofu þar sem 3 agnarsmá kríli voru. Æðislegt að sjá hvað tæknin getur auðveldað hlutina.
Við fengum svör við mörgum mörgum spurningum svo nú er bara að spíta í lófana og fara að skrifa :/
Styttist og styttist í skiladag!!!!!!!!!!!!! hólí mólí .....

Verð rosalega fegin að skila þessu inn og þá get ég farið heim í jólafrí :)

Planið fyrir helgina er að læra og læra og en svo ætlum við að fara aðeins í bæinn og fá smá jól í augun í kuldanum ;)
Það snjóaði meira að segja smá í dag, en göturnar eru nú bara hvítar af salti en ekki snjó!

Ég er að horfa á Baywatch hahahaha.... Ó MÆ GOD!!!!!!!!!!!! djöfull eru þetta ógeðslega hallærislegir þættir hahahahhahahahah........

Góða helgi :)

~~ 27 ~~

mánudagur, 17. nóvember 2008

Veik :(

Og er komin með nóg af því :( Var veik ALLA helgina mér til mikillar ánægju. Hélt að ég væri að verða góð í gær og yrði orðin fín í dag. En nóttin var vibbi og ég er enn hrikalega slöpp :( og ekki hjálpar samviskubitið sem ég er með!!!
Þar sem ég stóð varla í lappirnar í morgun þá gat ég ekki mætt í status með grúbbunni minni :( En vona að þau muni nú fyrirgefa mér það!!

Annars er veturinn að koma á föstudaginn en það er spáð snjókomu og líka á laugardaginn... Verð nú að segja að ég hlakka nú bara pínu til að sjá snjó :) Gunni er nú ekki sammála mér þar sem hann hjólar í skólann og það gengur nú ekki í hálku og snjó. En kannski verður helgin bara hvít :)

Mánuður í heimkomu :) :) :)

föstudagur, 14. nóvember 2008

Það er komin helgi :)

Ég er búin að bíða eftir helginni síðan á sunnudaginn!!! Ég er eiginlega farin að bíða eftir næstu helgi líka :/ Ég verð alla vegana voða fegin þegar mánudagurinn er búinn!
Ég er að fara í "próf" þetta er svona status tjékk fyrir verkefnið. Frekar furðulegt finnst mér! Við erum búin að vera að vinna í þessu í mánuð sem þýðir að núna eigum við nánast allt verkefnið eftir. Skil ekki alveg af hverju það er verið að eyða þessum litla tíma sem við höfum til að klára þetta verkefni í e-ð svona bull :(

Vikan er annars búin að vera fín, reyndar búið að rigna og rigna og það birtir varla til á daginn sem er frekar þreytandi svona til lengdar.
Ég lenti meira að segja í hagl/rigningu í gær á leðinni heim úr strætó, ég varð RENNANDI blaut!!!!

Gunni er í lokaprófi núna í Regnskabsanalyse, ég held að hann eigi eftir að rúlla þessu upp :) hlýddi honum aðeins yfir í gær og komst betur að því að svona buisness fög eru ekki fyrir mig hehe... Lærði samt smá af þessu ;)

Jiii ég talaði við Lilju í gær og komst að því að ég er gjörsamlega dottin út úr öllu :O Það er komin sería SEX af OTH og ég vissi það ekki :O og það er meira að segja búið að semja um seríu SJÖ! Ég barasta á ekki orð :/

Jæja ætla að fara að baka súkkulaðiköku fyrir Gunna (og mig líka ;) )

Góða helgi :)

mánudagur, 10. nóvember 2008

:-)

Ég átti alveg æðislega afmælishelgi :) Gunni stjanaði við mig hægri vinstri hehe... Bakaði meira að segja handa mér kanilsnúða mmmmmm......

Ég fékk samt heimþrá á afmælisdaginn :( skrítið að hafa ekki fullt af vinum og ættingjum í kringum sig á þessum degi. En Gunni bjargaði mér nú alveg :)

Við tókum því bara rólega, horfðum á Dagvaktina (sem er btw ÆÐI!!) og borðuðum svo æðislegan mat um kvöldið og ég bakaði afmælisköku til að hafa í eftirrétt.

Ég fékk líka fínar gjafir! Dagmar og Guðrún gáfu mér rosa flotta skólatösku (fékk hana reyndar í ágúst), svo fékk ég Brúðgumann á dvd frá Atla Steinari og Ölmu Rut, mamma og pabbi sendu mér hlýjan pakka ;) Ullargammó og langþráðan hitapoka!
Gunni gaf mér svo roslega flott leðurstígvél :-)
Kristófer sendi mér líka rosa flottar teikningar!!! Ótrúlegt hvað krakkinn teiknar vel!!! :O ég hélt fyrst að hann hefði bara litað þessar myndir en fór svo að skoða þetta betur og jú jú hann hafði teiknað þetta sjálfur.

Núna tekur við soldið strembið tímabil hjá okkur báðum.
Það er bara mánuður í að grúbban mín ætlar að vera búin með verkefnið sem þýðir að við eigum eftir að skrifa um 70bls á næstu vikum :/

Á morgun erum við að fara að skoða fyrirburadeildina á Aalborg Sygehus, það verður rosalega spennandi held ég :) en verkefnið okkar er einmitt um nýja tegund af hitakössum fyrir fyrirbura.
Ég er búin að liggja hér yfir óléttubókum og alls kyns bókum um fósturþroska hehe... Er búin að læra alveg fullt!! En þessi nýja tækni er alveg ótrúleg og alveg magnað hvað það er hægt að gera fyrir þessi litlu börn sem eru stundum ekki nema 450g.

Það er líka frekar óhugnaleg tilhugsun að börn sem fæðast í 24.viku meðgöngu eiga ágætis möguleika á að lifa á meðan að í Bretlandi eru "fóstureyðingar" leyfðar fram að 25.viku. Er þetta rétt???? Ég held alla vegana að ef það tekur þig 25 vikur að ákveða hvort þú viljir eiga barnið eða ekki að þá er e-ð verulega mikið að þér!!!

En alla vegana .....

Ætla að halda áfram að læra :)

Bestu kveðjur heim á klakann :*

föstudagur, 7. nóvember 2008

Er kominn desember??

Eða eru jólin í Danmörku í nóvember??

Það er búið að skreyta allan bæinn, fólk er byrjað að versla jólapappír og skraut á fullu. Það er meira að segja komin jólasería í tré hérna í garðinn við hliðana á okkur!!! Það er NÓVEMBER fólk!!!
En æj mér finnst þetta samt alveg ágætt :)
minnir mig bara á það að það styttist í heimferð.

Við skelltum okkur á forsýningu á Bond í gær. Þetta var Gala forsýning og átti fólk að mæta í jakkafötum og kjólum. Við hlógum nú bara af því og fórum bara frekar venjulega klædd og bjuggumst nú ekki við að fólk myndi virkilega mæta svona fínt í BÍÓ.
En JÚ!!! það var bara eins og við værum mætt á árshátíð!!! Menn í jakkafötum og konur í SVAKA kjólum :O haha...
Við vorum með þeim fáu sem voru bara venjulega klædd, frekar spes.
Myndin var annars alveg ágæt, langt frá því að vera besta Bond mynd sem ég hef séð. Freker þunnur söguþráður og æj ...

Ætla ekki að hafa þetta neitt lengra núna.

Segi bara góða helgi :)

miðvikudagur, 5. nóvember 2008

5.nóvember 2008

Loksins loksins loksins hefur bandaríkjamönnum tekist að kjósa já og telja rétt :)
Það verður gott að fá loksins mann sem er skrifandi og talandi í hvíta húsið! Og varaforseta sem heldur ekki að Rússland sé við hliðina á Alaska.

Dóra er komin og farin. Það var æðislegt að fá að sjá hana þó að það hafi nú verið mjög stutt :) Hlakka bara til að fá fleiri heimsóknir... býður sig einhver fram??? ;)
En annars styttist alltaf í að við komum heim en alltof langt samt finnst mér.

Það er að verða voða jólalegt hérna, hamast við að skreyta niðri í bæ enda J-dagurinn á föstudaginn. Verður án efa gaman að kíkja í bæinn þá :)



Við erum að fara á gala-forsýningu á James Bond á fimmtudaginn og svo er bara ammmæli á laugardaginn :O :O
Ætlum bara að hafa það kósí, elda góðan mat en ef þið viljið þá megiði alveg kíkja í köku og kaffi ;)
Það kom pakki frá mömmu í gær og Gunni setti hann svo hátt upp að ég næ honum ekki til að kíkja hehe...

En jæja ætla að nýta daginn og byrja að læra :)

Bið að heilsa heim ...

miðvikudagur, 29. október 2008

Hjúkkett....

Sterling greyið farið á hausinn :( sem betur fer vorum við ekki búin að kaupa okkur miða með þeim til Köben í desember!!!! Nú er bara að krossa fingur og tær og vona að Icelandexpress tóri!!!
Væri frekar fúlt að missa þá miða :/

mánudagur, 27. október 2008

Það er kominn vetur!

Sem þýðir að það er búið að breyta klukkunni og bara 1klst munur á okkur og Íslandinu núna :) æði æði ....

Ég er í skólanum í augnablikinu og vá hvað mér leiðist!!!! :( er búin að vera hérna í 4klukkutíma og gera nánast EKKERT!!! Svo byrjar tími eftir 20mín. Stundum er þessi grúbbuvinna ekki alveg að gera sig. Skil t.d ekki af hverju ég þurfti að fara svona snemma á fætur í morgun :( hefði sko alveg getað kúrað aaaaðeins lengur.

Við erum að fara á íslendingaball á laugardaginn eitthvað Velkomst ball. Vona að það verði stuð og maður hitti kannski eitthvað skemmtilegt fólk!!! Er alveg farið að vanta vinkonu :(
Krakkarnir sem eru með mér í skólanum eru svo hrikalega UNG að það hálfa væri nóg....
Eða alla vegana þeir krakkar sem ég hef kynnst hingað til. Þau eru samt voða fín flest en æj pínku gelgjur heheh...

Annars styttist í að Dóra komi í heimsókn :) hún mætir á svæðið um næstu helgi vúhúúú.... og svo styttist óðfluga í afmælið mitt :/

Og vá hvað ég hlakka til að koma heim í des og hitta alla :)

þriðjudagur, 21. október 2008

Eru ekki ALVEG að koma jól????

Það er búið að dagsetja Julefrokost...

Jólabjórinn er kominn...

Jólaauglýsingar í sjónvarpinu og útvarpinu...

Jóladótið komið í búðirnar, meira að segja súkkulaði dagatölin...

Vantar bara Julepostej mmmmm...



Enn það eru víst 64 dagar til jóla og e-ð aðeins minna þangað til að við komum á klakann aftur.

Á þessum minna en 64 dögum eigum við bæði eftir að skrifa nokkra tugi blaðsíðna í verkefnunum okkar. Vá hvað ég verð fegin þegar það er búið :)
En verkefnið mitt er nú samt svaka spennandi :) Hlakka nú bara til að vinna í því!!!

Jæja ætla að fara að læra :-)

nohhh... heyrði auglýsingu frá Kammakarlo á Bylgjunni það er bara eins og maður sé heima :) hehe...







mánudagur, 20. október 2008

Fyrir Jóhönnu :)

Já já ofurbloggarinn fór í frí hmmmm....

Voða voða voða lítið að frétta héðan!! Erum reyndar búin að kaupa okkur kort í ræktina þið mynduð fá KAST ef þið séuð þessa "stöð" hahahaha....

Málið var það að það er ekki alveg líkamsræktarstöð hér á hverju horni eins og heima og við vorum ekki alveg að sjá það ganga að við þyrftum að hjóla lengst út í r***.
Þannig að Gunni fann stöð sem er hér rétt hjá (10mín að hjóla). Við ákváðum að skella okkur bara og kaupa kort!!! Ég hef ALDREI séð svona stöð áður haha... ELDgömul tæki (virka samt vel ;) ) og þvílík TRÖLL að æfa þarna. Ég tek mig vel út með mín 5kg haha...
En þetta er annars bara mjög fínt :) Gott að vera farin að hreyfa sig aftur!!! Er svona að vona að ég muni fá einhverja auka orku með þessu! Er búin að vera ógeðslega orkulaus í allt haust!!!!
Líst ekkert á þetta lengur....


Ég var í verklegum tíma í síðustu viku. Vorum í 2 heila daga að vinna með alveg ótrúlega magnað og skemmtilegt verkefni :)
Við vorum að vinna með tækni sem er hægt að nota til að stýra hjólastólum með ertingu á vöðvum. Við áttum að finna góða vöðva sem hægt væri að nota og prófa okkur áfram. Svo var keppni þar sem við stýrðum LEGO hjólastólunum okkar í gegnum braut sem var gerð fyrir okkur og lenti minn hópur í 2.sæti :)
Þetta var ÓTRÚLEGA gaman :) Ji og vitið hvað haha... Í keppninni var boðið upp á BJÓR í boði kennarans okkar!!! :O svona er að læra í Danmörku ;)

Gunni varð líka frægur á Jótlandi á föstudaginn ;) haldiði að hann hafi ekki bara komið í svæðisfréttunum!!! Ótrúlega frægur :) hehe... Það var verið að taka viðtal við strák sem er með honum í grúbbu og Gunni sást í fréttinni hehe... Tók sig rosa vel út ;)

Dóra kemur eftir 2 vikur :) og svo styttist í afmælið mitt :O ó mæ ó mæ ....

Jæja bið að heilsa heim og ég skal reyna að vera duglegri að blogg...

þriðjudagur, 14. október 2008

Tveir nýir ungar :)

Dýrleif og Haukur eignuðust strák númer 2 þann 8.október :) Lítill og ekkert smá hárprúður drengur þar á ferð!


Linda og Raggi eignuðust svo pínkuponsu litla stelpu þann 11.október algjört krútt!!!

Hlakka mikið til að fá að hitta þau :)

Til hamingju krakkar :)

laugardagur, 11. október 2008

Hann pabbi minn er YNDISLEGUR :)


Síðustu dagar hafa verið okkur rosalega erfiðir :( Lítið sofið og erfitt að koma sér fram úr á morgnanna. Okkur hefur mest bara langað til að draga sængina upp fyrir haus og reyna að flýja þennan ljóta raunveruleika.
Okkur hefur fundist erfitt að vera svona langt í burtu þegar fjölskyldur okkar eru að ganga í gegnum þetta LJÓTA tímabil :(
En við verðum öll að reyna að vera bjartsýn og þakka fyrir það sem við þó höfum.

Pabbi sendi mér æðislegt email í dag :)

Þetta er það sem hann sagði: " Við verðum að þreyja þorrann, maður getur sætt sig við það. Þetta getur varla farið neðar alla vegana, þetta snýst bara um peninga, það sem íslendingar þurfa að gera núna er að taka utan um hvern annan og smá klapp á öxlina, ég held að þjóðin hafi verið búin að missa sjónar af því sem mestu máli skiptir, sem er fólkið sjálft og heilsan.
Starfsfólk Glitnis fór út í hádeginu til að faðma hvert annað, vonandi endar þetta ekki með einhverri lausung og framhjáhaldi eða kynferðislegri áreitni. Ég held að þetta verði góð lexía, en bara heldur sársaukafull fyrir marga."

Þannig að ég held að við ættum bara að vera góð hvert við annað og trúa því að við komumst öll í gegnum þetta tímabil :)

Elska ykkur og er bara víst stolt af því að vera ÍSLENDINGUR :)

þriðjudagur, 7. október 2008

Núna er ég orðin ÓGEÐSLEGA dugleg að blogga :)

Ætlaði bara að monta mig af pakkanum sem ég var að fá frá mömmu og Dagmar :)
Þær eru nú alveg ótrúlegar hahaha....

Fyrsta sem ég fékk var CHEERIOS jebb morgunkornið í gula pakkanum!!! haha... Hef nú alveg lifa vel án þess en samt sem áður mjöööög gott :)


Svo kom KÓKÓMJÓLK!!! haha.... mmmmmmmmmmmmmmmmm........... Hún er inn í ísskáp að kæla sig :) hlakka mikið til að drekka hana :)


Svo var nammi nammi og nammi !!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!! :)


Líka 3 íslenskar bækur (til að hvíla hausinn á mér aðeins)
og

HARÐFISKUR!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!
jammííííííííííííí...........................


Ætla að njóta pakkans míns núna :)

mánudagur, 6. október 2008

...

Hvað getur maður sagt á svona degi?? :(
Ég hef aldrei upplifað annað eins! Ég get ekki líst því hvernig mér líður þetta er svo hrikalegt :(

En maður verður bara að vona að það náist að blása lífi í blessuðu krónuna okkar og að við munum öll komast yfir þetta ástand.

sunnudagur, 5. október 2008

Vá hvað ég er orðin lélegur bloggari!!!! :O

Já hef bara ekki bloggað lengi lengi ....
En málið er bara það að ég hef voða lítið að segja :/

P0 tímabilið er búið í skólanum og á morgun byrjar svo P1. Vona að ég nái mér í góða grúbbu er pínu stressuð yfir því þar sem ég er náttla ÚTLENDINGURINN í hópnum urrrr....
Er ekki að fíla að vera ÚTLENDINGURINN og ég er orðin frekar pirruð á því að vera ekki orðin ALTALANDI urrrr.....
En þetta tekur víst tíma!

Fékk smá heimþrá í gær ... Þetta er ekkert auðvelt! En ég hef sem betur fer Gunna til að hugga mig og knúsa :)

Við erum að spá í að skella okkur til Berlínar í haustfríinu okkar :o) Erum fegin að eiga bara danskar krónur í augnablikinu!! Þetta er hætt að vera sniðugt :(
Vonandi fer nú eitthvað að rætast úr þessu öllu saman ...
*KROSSA FINGUR*

Svo fer að styttast í jólafrí og Íslands heimsókn :)
Bið að heilsa heim!!

Munið að kvitta ;)

fimmtudagur, 25. september 2008

Ég sakna RÚV!!!!

Nei ég er ekki að djóka!!!! Ástandið er það slæmt að það skásta sem er í sjónvarpinu í augnablikinu er SÆNSKT IDOL og ég er að horfa á það!!!! :O
Og NB! það er Steven Seagal þema alla vikuna á 3+ hvað er málið með það ég bara spyr?? hahaha....

Í kvöld er afslöppunarkvöld! kvöld sem ég er búin að bíða eftir lengi lengi ... :)

Fór í mitt fyrsta munnlegapróf í dag og ég er búin að kvíða fyrir þessum degi síðan ég byrjaði í skólanum og vá hvað ég fékk mikið spennufall þegar það var búið haha...
Um leið og ég steig út úr stofunni fékk ég dúndrandi hausverk og gjörsamlega datt úr sambandi hehe... Við vorum öll svona í grúbbunni!

En það gekk bara mjög vel :) Hvert okkar kynnti verkefni í c.a 5mín og svo voru spurningar í hátt í klukkutíma. Þetta var meira eins og spjall um verkefnið okkar ekki próf. Þetta var bara alveg ótrúlega fínt :)

Svo er bara komið helgarfrí!!!! Og ekki skóli fyrr en á FIMMTUDAGINN eftir viku :O
Á mánudaginn fer ég í Rustur sem er nýnemaferð með skólanum. Á víst a vera svaka stuð, við komum til baka á miðvikudaginn.

Gunni greyið þarf að vera einn heima á meðan :(

En já það er annars bara allt gott að frétta af okkur héðan! Búið að vera svo æðislegt veður að maður getur nú ekki kvartað :)

Góða helgi :)

föstudagur, 19. september 2008

Komin helgi :)

Og vika 3 í skólanum BÚIN :) Verkefninu var skilað inn í dag svo nú er "bara" prófið eftir sem ég kvíði alveg ÓGEÐSLEGA mikið fyrir :(

Tölvan er komin í hús og líka sendingin að heiman :) Þannig að nú er ég held ég bara flutt að heiman :O
Komin með myndir og kertastjaka og skrifborðið mitt og auðvitað allt skóladótið þannig að nú hef ég pennaveski til að fara með í skólann :)

Annars er voða lítð nýtt að frétta af okkur engin stór plön fyrir helgina nema eitt stykki afmæli hjá Klaus.
Annars ætla ég bara að reyna að undirbúa mig fyrir mitt fyrsta munnlegapróf hér í Danaveldi :/

Góða helgi og kossar og knús heim :)

þriðjudagur, 16. september 2008

Danmörk

Það hefur margt breyst síðustu mánuði ...

  • ég fer í STRÆTÓ í skólann og úr og hann er nánast alltaf fullur!!
  • ég fer út í búð á HJÓLI!!
  • ég tala þrjú tungumál yfir daginn og er þ.a.l frekar steikt í hausnum ALLTAF!!
  • ég nota regnhlíf þegar það rignir!!
  • ég þarf að passa mig að stíga ekki á froska og slímuga snigla þegar ég fer út að labba á kvöldin!!
Já þetta er svolítið öðruvísi en heima en ég er að venjast þessu :)

Danir eru líka ÖÖÖrlítið öðruvísi en íslendingar ...

  • það er í tísku að vera í gúmmístígvélum
  • gamlar konur ganga með sturtuhettur á hausnum ÚTI!!
  • þeir tala voðalega furðulegt tungumál
  • þeir eru voðalega uppteknir af því að spara (e-ð sem íslendingar þekkja ekki)
  • þegar þeir sitja á hjóli þá hika þeir ekki við að hjóla yfir þig ef þú ert óvart fyrir!!
  • þeir taka hundana sína með í strætó

En já ég er líka að venjast þessu öllu.

Þó að danirnir séu stundum soldið halló þá erum við samt alltaf jafn töff finnst ykkur það ekki?? ;)

Þetta eru nýju skólamyndirnar af okkur :)


mánudagur, 15. september 2008

* mont *

Ég var að kaupa mér eina svona ....

Hún er agnar smá bara 24,9 x 19,5 x 3,6 cm
og alveg heilt EITT kíló að þyngd ;)

Nú er bara að bíða eftir að hún skili sér heim :)

hlakki hlakki ....

föstudagur, 12. september 2008

Held að ég skuldi blogg :)

Það er kominn 12.september VÁ!! :o

Við fórum til Gautaborgar í nokkra daga í lok ágúst og skemmtum okkur rosa vel :) Tókum bara smá túrista og löbbuðum um alla borgina, mjög falleg borg og ekki skemmdi að við fengum alveg æðislegt veður :)
Við eyddum líka heilum degi í Liseberg sem er geggjaður skemmtigarður með alveg fullt fullt fullt af rússibönum og við fórum í alla þá stærstu nema einn sem ég fer bara í næst hehe...

Við komum heim 31.ágúst og ég byrjaði svo í skólanum 1.sept.
Er sem sagt búin að vera í skólanum í 2 vikur núna og það gengur bara fínt :) Drullu erfitt en það er bara gaman.

Ég er í fínum hóp þó að við séum nú kannski ekki alveg búin að fatta hvernig er best að vinna saman sem grúbba hehe... En það kemur :)

Annars er voða lítið að frétta svo sem bara allt komið á fullt hjá okkur báðum og styttist bara óðum í jólafrí er það ekki hehe.. :)

Erum búin að vera með smá heimþrá hérna en það er bara svona þegar það er mikið stress :)

Jæja góða helgi :)

Ég skellti inn nýjum myndum í ágúst albúmið.

föstudagur, 5. september 2008

30.08.08

Mig langar bara til að óska henni Sunnevu minni og Dabba til hamingju með daginn síðasta laugardag :)
Og auðvitað henni Júlíu Rut til hamingju með mömmu sína og pabba!!

+
Vona að þér sé sama Sunneva að ég stal þessari mynd en þú ert bara svo ótrúlega falleg á henni :)

Hlakka til að heyra alla söguna og sjá myndir.

Kossar og stór knús :)

fimmtudagur, 4. september 2008

Er enn á lífi

Ég er ekki frá því að þessi vika sé búin að vera með þeim erfiðari :/
Ég byrjaði í skólanum á mánudaginn, þá var skólasetning og okkur var skipt niður í grúbbur. Strax á MÁNUDAGINN var byrjað að tala um verkefni og við hittum vejlederen okkar. Skil á þessu fyrsta verkefni er 23.september og MUNNLEGT próf úr því er 25.september. hmmmmmmmmmmmm................ SMÁ kvíðahnútur í maganum!!!

Á þriðjudaginn var svo okkar fyrsti grúbbuhittingur. Ég var eins og BJÁNI!!! Fannst ég ekkert skilja og sagði ekki baun!!!! Þetta var frekar vandræðalegur dagur þar sem við sátum nánast bara allan daginn og horfðum út í loftið.
Svo kom vejelederinn okkar aftur og þá þurfti mín sko að segja frá sér á DÖNSKU hmmm... hmmm... hmmm... Það reddaðist og ég lifði af þrátt fyrir óvenju hraðan hjartslátt!!

Á miðvikudag s.s í gær þá var aftur grúbbuhittingur og svo var tími þar sem okkur var bara kennt á tölvurnar hér í skólanum og á netið og svona.

Í dag fór ég svo í minn fyrsta fyrirlestur og LOKSINS LOKSINS LOKSINS skildi ég um hvað var verið að tala :) Þetta var stærðfræði!
Ég er samt að vona að ég fái stærðfræðina metna en þá get ég einbeitt mér betur að verkefnavinnunni og svona.
Það þýðir líka það að ég fer bara í 1 próf í janúar, bara munnlegt úr verkefninu sem við gerum fyrir jól.

En já þetta er búin að vera mjög erfið vika en ég held að þetta sé allt að skána :) Var nú bara á því að gefast upp á þessu hérna um daginn hehe.. En nei ég ætla nú að láta reyna á þetta :)

En heyriði á skólasetningunni þá rakst ég á bekkjarbróður minn úr HR frá því í fyrra!!!! :O Hann er sem sagt aftur með mér í bekk núna. En samt ekki í grúbbu en það er ágætt þá verð ég kannski bara fljótari að ná dönskunni :)
Annars eru krakkarnir í grúbbunni minni rosa fín :) Þegar þau loksins þorðu að tala við mig og ég við þau hehe...

Jæja nóg í bili

mánudagur, 1. september 2008

....

Ég skal blogga í vikunni ég lofa...

Skal segja ykkur allt um ferðina til Svíþjóðar og fyrstu skóla vikuna.

Fyrsti dagurinn var í dag og ég er GJÖRSAMLEGA búin á því hehe..

Tekur ekkert smá á að REYNA að skilja allt sem er verið að segja við mann!!

úffff....

fimmtudagur, 21. ágúst 2008

Heimsókna mánuðurinn mikli :)

Jæja er ekki kominn tími á eitt almennilegt blogg?? hmmm....

Það er búið að vera svo mikið að gera hjá okkur þennan mánuðinn að við höfum varla kveikt á tölvunni.

Foreldrar Gunna komu til okkar aðfaranótt 6.ágúst og voru hjá okkur til 9. Það var alveg æðislegt að fá þau og við spjölluðum mikið saman og borðuðum alveg hrikalega góðan mat alla daga :) Þvílíkt dekur alveg hehe..
Við notuðum tækifærið fyrst Sjöfn og Ingó voru á bíl og skelltum okkur í BILKA og fjáfestum okkur í sjónvarpi. Engu smá!!! hahaha... Þau voru á Yaris og sjónvarpið var svo stórt að það var ekki pláss fyrir mig og Sjöfn heim!! Bíllinn var bókstaflega fullur af sjónvarpi haha.. En þeir skutluðu því bara heim og sóttu okkur svo :)

Ein svaka stolt af nýja 37" sjónvarpinu sínu ;)

Á laugardeginum 9. fór ég eldsnemma með flugi til köben og tóku Dagmar og öll hennar fjölskylda á móti mér á flugvellinum :) ohhh.. það var svo gott að sjá þau aftur!!!!
Um hádegi hittum við svo mömmu og Guðrúnu og fórum inn í Lyngby að rölta, þaðan var svo farið í tivolíið þar sem við Atli Steinar skelltum okkur í nokkur tæki :)
Sunnudagurinn var nokkuð rólegur, bara aðeins skroppið í Fields og svo fóru Dagmar og co heim um kvöldið. Frekar erfitt að kveðja þau :( leiðinlegt hvað ég náði lítið að vera með þeim en þessi eini dagur var nú samt alveg æði :)

Það var svo æðislegt að hitta þennan kall aftur :)

Ég, mamma og Guðrún vorum einar eftir í köben og tókum smá túrista bara á þetta :) Fórum í tvær siglingar og röltum um borgina, skoðuðum Jóns hús og svona skemmtilegt.
Á miðvikudeginum kom pabbi og Guðrún fór :( Alltof mikið að þurfa að kveðja alla svona í sitt hvoru lagi!!

Við náðum okkur í bílaleigubíl og keyrðum upp Jótland til Álaborgar. Mamma og pabbi voru svo hérna hjá okkur í viku :) Sem var algjört æði!!!!
Við skoðuðum Álaborg hátt og lágt, skelltum okkur í dýragarðinn og keyrðum líka til Silkiborgar og Nibe. Komum við í Århus og fórum í IKEA þar sem við fjárfestum í ýmsu í íbúðina :) Þannig að skáparnir eru ekki alveg jafn tómir og þeir voru hehe.. Keyptum líka kommóðu og eldhúsborð þannig að það er að verða voða heimilislegt hérna hjá okkur :) Við Gunni fórum svo í Silvan í dag og keyptum okkur ljós yfir borðstofuborðið :)

Svaka fjör í dýragarðinum í geggjuðu veðri :)

Mamma og pabbi yfirgáfu okkur í gær þannig að það er voða tómt hérna núna :( Verð nú að viðurkenna að mér fannst nú ekkert rosalega auðvelt að kveðja :/ En mér líður samt voða vel hérna og dagurinn í dag var nú auðveldari.
Svo er Gunni loksins kominn í sumarfrí þannig að við getum e-ð dúllað okkur næstu vikuna en svo byrjar fjörið í skólanum :)

Jæja held að ég hafi ekki gleymt neinu stóru þannig að ég bið bara voða vel að heilsa heim og verið nú dugleg að kvitta :)

Já og ég er búin að setja link á ágúst myndir :)

miðvikudagur, 20. ágúst 2008

Skrítinn dagur í dag

Við erum búin að hafa gesti meira og minna allan mánuðinn en núna er íbúðin bara TÓM!! :(

Mamma og pabbi fóru snemma í morgun eftir að hafa verið hérna í viku. Ég er smá lítil í mér en sem betur fer hef ég nú hann Gunna :)

Ég lofa að blogga STÓRT blogg á morgun og setja inn FULLT FULLT af nýjum myndum :)

mánudagur, 4. ágúst 2008

Kominn ágúst!!!

Ótrúlegt hvað tíminn líður hratt!!! Vá! Ég verð byrjuð í skólanum áður en ég veit af :) Ég fékk LOKSINS bréfið frá skólanum í síðustu viku :) Ég er VOÐA VOÐA glöð :) Er núna formlega orðin nemandi í Sundhedsteknologi við Aalborg Universitet :)

Við fengum heimsókn frá Århus um helgina :) Frændi Gunna og kærastan hans kíktu á okkur. Það var voða gaman að fá þau :) og ekki síst þar sem þau komu sko EKKI tómhent!!!!! Úfff... Alveg ótrúleg :)
Þau komu með ÍSLENSK LAMBALÆRI!!!!!!!!!!!!!!!! og vá hvað það var mikil veisla hjá okkur á laugardaginn :)

TAKK TAKK TAKK TAKK FYRIR OKKUR :)

Gunni átti erfitt með að sleppa lambinu ;) haha...

Á morgun koma svo fyrstu gestirnir okkar frá Íslandinu :) Æj það verður svo gott að fá smá heimsókn :) Ég fer svo til Köben á laugardaginn að hitta mína familíu :)

Gleðilegan ágúst :)

Og hvernig væri nú að kvitta fyrir sig?? ;)

hmmmmm.....

laugardagur, 26. júlí 2008

Sól sól og meiri sól :)


Það er búið að vera alveg ÆÐISLEGT veður hérna síðustu daga og ég held barasta að ég sé að fá smá lit :) Við erum búin að hafa það hrikalega gott hérna úti í garði og skelltum við okkur á Pálmaströndina í Fredrikshavn á föstudaginn.
Gunni átti að vera búinn snemma og þar sem veðrið var svona geggjað þá stakk hann upp á því að ég kæmi bara með lestinni til Fredrikshavn og við myndum fara á ströndina.
Ég tók lestina og þegar ég var ný lögð af stað þá hringdi Gunni og þá hafði hann verið kallaður út :( Ég fór þá bara ein á ströndina en Gunni kom svo þegar hann var búinn að vinna. Við höfðum það voða gott allan daginn og komum ekki heim fyrr en rúmlega tíu um kvöldið.

Í dag var veðrið GEGGJAÐ :) Við tókum því bara rólega hérna heima, röltum út í búð og fórum svo að sækja hjólið mitt sem var við Kildeparken svo hjóluðum við um Østerårdalen það var æði :) Töluðum við kýrnar og hittum geðsjúkan svan!!! Við hjóluðum að vatni sem er þarna og þar voru alveg fullt af öndum sem komu alveg á hundraðinu til okkar, héldu greinilega að við værum með eitthvað fyrir þær að borða. Svo komu tveir svanir með ÁTTA frekar stóra unga með sér og annar svanurinn bara stökk upp úr og ætlaði að ráðast á okkur!!! Öskarði og öskraði og hljóp á eftir okkur hehe... Okkur leist nú ekkert á þetta og vorum skíthrædd! En Gunni ætlaði nú ekki að láta SVAN segja sér að fara ;) Gunni vann rifrildið á endanum þegar hann uppgötvaði að svanurinn var hræddur við bjölluna á hjólinu hans hehehe...
Vildi að ég hefði haft með mér myndavél þetta var algjör snilld :)

Ég verð bara að vinna út næstu viku og svo byrjar heimsóknatörnin mikla :)
Gunni er að byrja á mánudaginn að leysa nýjan gaur af og þá þarf hann að keyra lengst út í rassgat!!!!!!!! Hann er búinn að standa sig rosalega vel í vinnunni og hefur fengið MÖRG hrós fyrir :)

Jæja ætla að segja þetta gott í bili og fara að hafa það kósý fyrir framan sjónvarpið :)
Veðurspáin fyrir næstu viku er áfram ótrúlega góð! :) Meira að segja spáð 29°C á morgun og á mánudaginn :O Úffff....

Spurning hvort ég verði jafn brún og hann Ronaldo vinur minn hehehe... ;)


Kossar og knús heim :)

mánudagur, 21. júlí 2008

Komin með netið :)


vúhúúúúúúúú............. :)

Ég er samt ekki að nenna að blogga e-ð svaka núna þannig ég ætla bara að skella inn nokkrum myndum ;)



Erum flutt...

Það var ALLT í drasli en ekki lengur :)

Borðstofuborðið komið á sinn stað :)

Fengum heimsókn um helgina og skelltum okkur á djammið

TVISVAR!!

Skemmtum okkur rosalega vel :)

Drukkum nokkra svona...

og nokkur svona :/

Annars er bara allt gott að frétta af okkur! Gunni er að vinna á fullu og ég já líka að vinna en ekki alveg beint á fullu hehe...

Hitabylgja á leiðinni þannig að það verður bara flatmagað í garðinum næstu daga :)

Bæ í bili

fimmtudagur, 17. júlí 2008

Enn og aftur sambandslaus vid umheiminn...

Vid erum ekki komin med netsamband a nyja stadnum :( Vona ad thad fari ad koma. Skritid ad komast ekkert a netid!!

En vid fluttum sem sagt sidasta laugardag og thad gekk bara vel :) fyrir utan SVAKALEGUSTU marbletti sem eg hef a ævinni fengid og ja eg var næstum farin ad grenja nokkrum sinnum heheh... Thetta tok alveg sma a fyrir litla aumingjann mig ;)
Okkur likar bara mjøg vel a nyja stadnum fyrir utan "ørlitinn" kulda i ibudinni tha erum vid bara mjøg satt :)

Agust litur ut fyrir ad verda heimsoknamanudurinn mikli :) Foreldrar Gunna ætla ad kikja a okkur og svo bara nanast øll fjølskyldan min.
Vona ad Dagmar og co byrji manudinn hja okkur, svo koma foreldrar Gunna og eg hitti svo mømmu,Gudrunu og Dagmar og co i Køben sennilega 9.agust. Pabbi kemur svo 13. og hann og mamma verda i Aalborg hja okkur i viku :)

Nog ad gera :)

Jæja bid ad heilsa heim og vonandi kemur netid fljott svo eg geti sett inn nokkrar myndir af ibudinni :)

fimmtudagur, 10. júlí 2008

Stór dagur :)

Við fengum íbúðina okkar afhenta í dag og það er enginn smá munur að sjá hana svona parketlagða :) Við erum ekkert smá ánægð og hlakkar mikið til að flytja. Ætlum að leigja okkur bíl á laugardaginn og flytja allt draslið þá. Fórum bara með einn kassa og eina tösku í dag um leið og við náðum í lyklana.
Okkur vantar samt mikið að kaupa okkur einhverja hirslu, helst skáp eða kommóðu. En við reddum því bara seinna :) Númer eitt er bara að flytja og skila þessari íbúð sem við erum í núna.

Ég byrjaði líka að vinna í dag :) Var hrikalega kvíðin úfff.... Átti að mæta kl.17 til að fá lykla og svona en það endaði með því að ég þreif allt með manninum. Á að mæta aftur á morgun og þrífa með honum en svo á mánudaginn verð ég bara ein.
Þetta eru tvær tannlæknastofur sem ég á að þrífa og mér líst bara mjög vel á þetta :) Gekk líka bara vel að skilja dönskuna og tala, eða hann virtist alveg skilja þessi fáu orð sem ég sagði við hann hehe...



Skelli inn nokkrum myndum þegar ég blogga næst :) vonandi bara núna um helgina en ég veit samt ekki alveg hvernig verður með netið hjá okkur á nýja staðnum.

Kyss og knús heim :)

miðvikudagur, 9. júlí 2008

Myndir

Setti inn link á myndasíðu :) er búin að setja inn júní albúm ...
Linkurinn er hér til vinstri undir "Myndir 2008"

mánudagur, 7. júlí 2008

07.07.08

Við eigum afmæli í dag :)



Héldum aðeins upp á það á laugardaginn og grilluðum æðislegan mat :) mmm.... Hlakka svo til að flytja og geta grillað oftar og þurfa ekki að hlaupa alltaf upp og niður á 3.hæð.

Grillmeistarinn ;)

Síðasta vika var mjög fín, rosa gott veður sem ég reyndi að nýta eins vel og ég gat :) Fór í sólbað í Kilde parken mmmm.... Elska þennan garð!!!




Á föstudaginn var Gunni svo búinn að vinna snemma sko fyrir NÍU!!! :) Þannig að við ákváðum að nýta daginn og skelltum okkur á ströndina í Fredrikshavn ÆÐISLEGUR dagur :) :) :)



Komum við í Dronninglund á leiðinni heim og fengum okkur að borða. Æðislegir svona litlir bæjir :)

Gunni náði að næla sér í kvef í síðustu viku greyið :( hann var ekkert smá slappur og ekki alveg það auðveldasta að þurfa að vinna í svona hita og veikur líka.
Hann er samt orðinn hress núna en hann náði að smita mig :( En ég er hvort sem er bara heima á daginn og get alveg pakkað og svona þó að ég sé með smá kvef :)

Annars byrja ég að vinna á föstudaginn og ég hlýt nú að vera orðin hress þá :) við fáum líka íbúðina á fimmtudaginn :) HLAKKA SVOOOOOOOOOOOOOOOO TIL!!!!!!!!!!!!!!!!!!!

Það er verið að parketleggja núna og vá hvað ég er spennt að sjá hvernig það kemur út :)

Mamma er komin heim af spítalanum og er öll að hressast! :) Talaði við hana á fimmtudaginn og það var bara ágætt hljóðið í henni. Nú er bara kominn tími til að hún hugsi betur um SIG!!! Svo ætlar hún að koma í heimsókn til okkar í ágúst og þá verður bara afslöppun og sólbað :)

Bið að heilsa öllum heima :)

sunnudagur, 6. júlí 2008

Er svo löööööt.....

...nenni bara engan veginn að blogga :( lofa bloggi í vikunni!!!
Stór vika framundan!!! :)
Flytja og byrja að vinna .....

Bið að heilsa heim :)

mánudagur, 30. júní 2008

klukkan er 5:36...

... og ég er VAKANDI!!! og búin að vera vakandi í næstum 2 tíma! Gunni er farinn í vinnuna sína og ég er aaaaaaaaaaaaaaalein heima :(
Mér fannst nú soldið ljótt að Gunni þurfti að vakna rúmlega FJÖGUR til að fara í vinnuna ég hefði kannski bara átt að fara fyrir hann þar sem ég var hvort sem er vakandi hehe...

Ég hlakka svo til að fá íbúðina okkar!!! :) :) :) Verst að við eigum nánast engin húsgögn en við hljótum að geta gert þetta kósý!! Held reyndar að það sé númer 1,2 og 3 að kaupa grill :) Verður svo næs að geta grillað úti! og hengja þvottinn ÚT!!!! :) Hlakki hlakki hlakki ....

Mamma er á spítala :( búið að vera soldið erfitt að vera svona í burtu en ég vona að henni fari nú að líða betur svo hún geti komið í heimsókn til mín í ágúst :)

Jæja kannski ég ætti að reyna að sofa smá ...

fimmtudagur, 26. júní 2008

Komin í samband!!!!! ;)

Loksins loksins loksins komin með netið aftur :) ótrúlegt hvað maður er háður þessu!!!

Vá hef ekki bloggað síðan á 17.júní og nú er að rifja upp það sem er búið að gerast þessa rúmu viku!!!!

19.júní - Dagmar og Arnar 4ára brúðkaupsafmæli! Til hamingju með það :)

20.júní - Gunni kláraði prófin og okkur var boðið í grill til Dillu, Hauks og Halldórs :) Fengum rosa góða grillmat mmmmm.... Takk fyrir okkur :) Verðum endilega að kíkja í pool við tækifæri ;) kallar á móti konum??? hmmmm.....
Um kvöldið fórum við svo í bæinn. Fyrsta skiptið mitt hér í Aalborg, testaði Jomfrueanegade sem er djammgatan hér.
Við Gunni skelltum okkur fyrst tvö á smá pöbbarölt og hittum svo hluta af grúbbunni hans. Rosa fínir krakkar :)

21.júní - Litla skottið hún "Mini me" a.k.a Alma Rut er orðin 2 ÁRA!!!! Ótrúlega fljótt að líða úfff... Var í Grand Canyon þegar hún fæddist, erfitt að gleyma því ;)

Gunni er búinn að vera í fríi þessa viku þannig að við fórum að kíkja á íbúðir eða reyndar enduðum með að kíkja bara á eina íbúð og tókum hana :)
Erum voða ánægð :)
Þetta er neðri hæð í einbýlishúsi í austurbænum, eldri kona sem leigir hana út og býr sjálf á efri hæðinni, voða kósý.
Hún er um 80 fermetrar, með sér inngangi og garði og voða fínt :) kamína í stofunni voða huggó ;) Læt nokkrar myndir fylgja og svo koma fleiri þegar við erum búin að koma okkur fyrir en við flytjum 10.júlí.

Ætla að skreppa til Odense um helgina í dagsferð og hitta hana Sunnevu :) en hún og Gulla eru í heimsókn hjá Eygló vinkonu þeirra. Hlakka mikð til að sjá þær :)

Jæja skelli hér nokkrum myndum...

Séð niður götuna


Séð út um stofugluggann



Inngangurinn okkar og sést í stofugluggana

Biðjum að heilsa heim :)

þriðjudagur, 24. júní 2008

sambandslaus vid umheiminn...

netid hja okkur er bilad :( lofa looooongu bloggi thegar thad er komid i lag :)

þriðjudagur, 17. júní 2008

Hæ hó jibbí jei og jibbí jei það er kominn 17.júní :)

þetta erum við Gunni búin að syngja í ALLAN dag og þramma hér um íbúðina í skrúðgöngu a.k.a röð.

Nei dagurinn var reyndar ekki alveg svona hehe... Ég bjó til CV og Gunni skellti því yfir á dönskuna. Ég fékk ekki vinnuna á spítalanum af því að ég tala ekki dönsku! Já ekki alveg sami lági standardinn og heima ;) En ég gefst sko ekki svona auðveldlega upp!!!!
Sótti um billjón störf í dag og er þegar búin að fá eina hringingu um boð í viðtal og eitt email :)
Þannig að þið verðið bara að halda áfram að krossa fingur og tær fyrir mig :)

Gunni "neyddi" mig til að horfa á GLADIATOR í gær og VÁ!! hún var nú bara GÓÐ :)

Gunni "neyddi" mig líka út að hlaupa áðan ;) hann sleppti samt bandinu sem ég var búin að stinga upp á. Það gekk bara ágætlega :) líður alla vegana miklu betur núna!!
Held nú bara að ég fara að stunda þetta :) ekki slæmt að fá að hlaupa smá í góða veðrinu með honum Gunna mínum :)
Stefni meira að segja á ræktina með honum í fyrramálið úfff.... Ætli það sé komið að átakinu BUMBAN BURT???

Ég er að vinna í að gera myndasíðu... Er búið að ganga pínu hægt þar sem ég týndi fyrst myndunum í tölvunni og gleymdi svo passwordinu inná síðuna NOKKRUM sinnum :O Ætli þetta sé ellin??? :/
Já og svo ætla ég að hafa password inná myndasíðuna... Vil ekki að allir geti skoðað ekki það að þetta sé e-ð ofur merkilegt neitt enn æj mér finnst það bara þægilegra.

Læt ykkur vita þegar þetta verður reddý ;)

Langar líka að óska mömmu og pabba til hamingju með brúðkaupsafmælið sitt í fyrradag :) stórt knús til þeirra!!!!!!!!!!!!!

Líka kossar og knús til ykkar hinna :)

Kveðja frá Aalborg

laugardagur, 14. júní 2008

Bloooooooooogggggg....

Já fólk bara farið að hóta að senda gíróseðla fyrir þá daga sem ég blogga ekkert! ;) Þannig að here it comes....

Laugardagur í dag AFTUR!! mér finnst alltaf vera helgi :) næstum TVÆR vikur síðan ég kom hingað!! Fljótt að líða og mér er strax farið að líða nánasta eins og heima hjá mér :)

Á miðvikudaginn fór ég í bumubufata leiðangur með Dillu og uuu... Ernu? ( ji ég er ömurleg að muna nöfn :/ ) Við skoðuðum bumbuföt um allan bæ, fengum okkur svo lunch og svona kósý. Það var rosa fínt :) Svo fór ég aðeins heim með Dillu og við kjöftuðum í smá stund og sóttum svo Halldór litla strákinn hennar til dagmömmunnar. Jiminn hvað hann er sætur!!! :) algjört krútt!!!!

Fimmtudagur..... uuuuu.... hvað gerði ég á fimmtudaginn???? Gunni fór alla vegana í TVÖ próf takk fyrir pent!!! Hann segist ekki vita hvernig honum hafi gengið en ég er viss um að þetta hafi gengið vel hjá honum :)

Já nú man ég ... Ég var ein heima allan daginn, var að leita mér að vinnu og svona. Svo fór Gunni að hitta grúbbuna sína um kvöldið og ég tók mér bara dvd. Hann kom nú samt bara frekar snemma heim og svo komu Daniel og nokkrir vinir hans og hlusta á "musik" í STÓRU nýju hátölurunum hans Daniels sem hann er NB! rosalega stoltur af ;)
Þetta eru svona týpískir hátalarar sem stelpur bara hreinlega skilja ekki og þar með talið ég hehe...

Þeir eru sko HUGE!! Ná mér upp í mitti en jú jú hann má nú alveg eiga það að "soundið" í þeim er gott. Æj strákar stundum hehe... ;)

En eftir að þeir voru búnir að hlusta á "We are the champions" NOKKRUM sinnum og syngja ofur hátt og falskt með haha... Þá fóru þeir á djammið.

Á föstudaginn fórum við sköturnar í dýragarðinn :) Verð nú bara að segja að þetta er rosalega flottur garður hérna :)
Tók okkur nokkra tíma að rölta um og skoða öll dýrin í rosa fínu veðri. Ég dó nú samt reyndar næstum á leiðinni í garðinn :(
Við hjóluðum eins og sannir danir gera... og haldiði að það hafi ekki bara verið lööööööööng brekka upp að blessaða garðinum :O Og ég í mínu líka fína formi úfff.... en það tókst :)

Hún Gitte Hoemann hringdi líka í mig á föstudaginn og bauð mér að koma í atvinnuviðtal á mánudaginn á spítalann hér í Álaborg :) bara einhver skúringavinna en ég er samt voða spennt og vona svo innilega að ég fái þessa vinnu!!!!!
Gengur heldur ekki lengur að vera svona fötluð í þessu tungumáli!!! Ætla sko ekki að vera þessi óþolandi útlendingur sem skilur ekki neitt og kann ekki að tala!!

Ég er samt búin að reyna eins og ég get að bjarga mér. Reyni alltaf að tala bara dönsku í búðum og svona ;)

Jæja vona að þetta sé nóg fyrir ykkur í bili ;)
kossar og knús heim :)

þriðjudagur, 10. júní 2008

Enginn nennir að lesa þannig að ....


.... MYNDABLOGG!!!!

Fór í ....



NB! það stærsta í DK ;)

Keypti mitt yndisfríða hjól ...



og þessa hér ...



Sótti um kennitölu þannig að bráðum verð ég löggiltur...



... nei ekki alki eða alka barn heldur DANI!!!



Þar sem ég má ekki tala um gott veður þá hlýt ég að mega tala um ...




já og meira að segja ekta íslensk rok með!!! Hvað eruði að senda þetta hingað??? Algjör óþarfi finnst mér ;)

Á morgun ætla ég svo að hitta hana Dillu og vinkonu hennar :) Hlakki hlakki ... :)

Við sköturnar í borg álanna biðjum að heilsa heim :)

sunnudagur, 8. júní 2008

Update...

Það hefur nú ekki mikið gerst hér í Álaborginni. Ég er orðin eins og hin versta/besta heimavinnandi húsmóðir hérna. Minn dagur snýst um að þvo þvott, uppvask og eldamennsku hehe.. Nei ég segi nú bara svona ;)

Tveir fílar lögðu af stað í leiðangur....

Við fórum út að labba á föstudaginn, enda æðislegt veður :) Við löbbuðum og löbbuðum og ég sá marglyttur í FYRSTA skipti á ævinni!!! Við löbbuðum áfram þangað til að við sáum svakalegasta SKÍT!! Okkur fannst þetta frekar furðulegt og Gunni djókaði með að þetta væri nú bara eins og fílaskítur...
Við héldum áfram að labba smá og hvað haldiði að hafi verið þarna á miðju túninu og bara smá bandspotti á milli okkar????

ÞRÍR FÍLAR TAKK FYRIR!!!!!!!!!!!!!!

Jámm sirkusinn er víst í bænum :) Þetta var ansi magnað....

Á laugardaginn fórum við svo í "smá" göngutúr eða alla leið út í BILKA sem er c.a 6 km og það var steikjandi hiti!!! Ég var búin að ákveða að fjárfesta í einu stykki hjóli með körfu :)
Og það gerði ég þegar við loksins komumst á leiðarenda en Gunni reiddi mig á sínu hjóli síðasta spölinn ;) svo góður þessi elska!

Eftir fjóra bjóra og þvílíkt vesen að koma *bíb* hjólinu saman þá var hjólað heim :) Ég var bara svaka dugleg og það var ekki keyrt á mig hvorki á bíl né öðru hjóli!!!
Fann líka þennan fína giftingahring á leiðinni!! Erum að spá í að bræða hann og selja þar sem við erum svo fátæk hehe...

Jæja ætla út að hjóla :)

Dísa dani

fimmtudagur, 5. júní 2008

5.júní Grundlagsdag i Danmark

Já haldiði að það sé ekki bara frídagur í dag. Eins konar þjóðhátíðardagur víst. Sá nú samt enga skrúðgöngu en alveg helling að fínum fánum út um allt og já ALLAR búðir lokaðar. Sæi það í anda heima að það væri allt lokað. Sjensinn sko...

En mér finnst nú bara allt í lagi að loka á svona dögum. Þar sem ég er nú samt ennþá íslendingur þá þurfti ég nú samt alveg bráðnauðsynlega að fara út í búð hehe... Fann EINA sem var opin og sem betur fer er hún nú bara í sömu götu og við búum.
Jámm skellti mér í FAKTA til að versla salat. Ég hefði nú bara verslað þetta blessaða salat í gær ef ég hefði vitað að það væri frídagur í dag.

Í gær, áður en ég vissi að það væri frídagur í dag, þá var ég sko búin að plana daginn í dag. Hafði sko stór plön.... Ætlaði sko að kaupa mér ferskan ananas og jarðaber mmmmmm.... Dreymdi nánast um þessa girnilegu ávexti í nótt ;)
En þau plön stóðust nú ekki þar sem FAKTA var ekki alveg að standa sig í grænmetis og ávaxtadeildinni. Ég færi þessi plön þá bara yfir á morgundaginn og skelli mér í FØTEX.

Það býr einhver illa steiktur gaur í götunni okkar. Hann er með svona gjallarhorn (heitir það það ekki annars? ) já og í það talar hann út og inn. Skammar fólk fyrir að fara yfir á rauðu ljósi og svona og svo virðist vera innbyggt í þetta tæki löggusírena.
Verð nú að segja að hann er nánast eins og klipptur út úr þætti með fóstbræðrum!!! Kíkið og þá skiljiði hvernig hann er ....





Jæja vona að það sé allt gott að frétta að heima :)

Bið að heilsa í bili ...

miðvikudagur, 4. júní 2008

...

hmmmm... Blogg númer tvö í dag ;)

Ég komst í sturtu í dag Daniel greyið skrapp út og ég var sko fljót að stökkva í sturtuna. Fyrir þá sem ekki vita þá er sko sturtan inn af herberginu hans ;)
Ótrúlegt en satt þá talaði ég meira að segja smá við hann í dag! Ég veit ég er ótrúlega huguð kona hahaha..

Fór í H&M shoppaði mér 3 boli þar sem maður á nú ekkert alltof mikið af sumarfötum. Sá líka sæta skyrtu í Vero Moda og kjól í einhverri búð sem ég man ekki hvað heitir.
Gunni er búinn að vera voða duglegur að læra enda styttist í próf hjá honum úfff.... Ég var ein heima í allan dag. Og eftir að ég kom heim úr bænum þá fékk ég mér smá að borða og las smá en eftir smá tíma var mér nú farið að leiðast soldið!! Sérstaklega þar sem tölvan var betteríslaus og Gunni var með hleðslutækið í töskunni.
En já mér sem sagt leiddist... Og haldiði að mín hafi bara ekki farið að þrífa!!! Jújú byrjaði á eldhúsinu. Skrúbb skrúbb skrúbb... Vá hvað mig hlakkar til að fá MÍNA eigin íbúð!!!!

Við ætlum í dýragarðinn um helgina :) maður verður nú að sjá þessa helstu staði!! Svo þurfum við líka að kíkja í BILKA á hjól handa mér. Kannski fyrst við ætlum þangað að maður kíki aðeins á úrvalið af diskum og glösum og svona og aldrei að vita nema maður fari aðeins í JYSK (rúmfatalagerinn) en hann er einmitt á sama stað og BILKA.

Á morgun er víst frídagur hér í Baunalandinu og hvað á ég þá að gera af mér??? Ég bara spyr hmmmm.....

Jæja ætla að fara að horfa á sjónvarpið :)

Kossar og knús

Ég er komin!!!!!

Jæja þá er mín mætt til Áló :) Ótrúlegt!!!!
Ferðin gekk vel og Gunni var mættur útá flugvöll að sækja mig þegar ég loksins lenti hér í Álaborg.

Veðrið hérna er rugl gott!!! Úfff... Og veðurspáin fyrir helgina ó mæ!!! Bara spáð 26-27 stiga hita!!! Við Gunni fjárfestum okkur í viftu inní herbergið okkar í gær. Vorum að kafna í fyrrinótt. Hrikalegt að sofa í svona hita.

Gærdagurinn var æði :) Auðvitað geggjað veður þannig að við ákváðum að fara bara í Kildeparken sem rosalega flottur garður hérna. Lágum þar eins og skötur en Gunni var nú samt líka að læra, ótrúlega duglegur, á meðan ég sólaði mig og las.

Ég er mikið að spá hvort ég eigi að skella mér í H&M núna en þar sem ég þyrfti nauðsynlega að fara í sturtu áður og ég veit ekki hvort ég sé ein heima eða ekki þá þori ég ekki inní herbergið hans Daniels hmmmm.....
Það er soldið spes að búa svona þrjú saman en það verður nú bara stutt. Ég hlakka nú samt mikið til þegar við fáum okkar eigin íbúð :)
Ok þá er það ljóst... ég er ekki ein heima. Eða var hann kannski að fara eitthvað út?? Kannski ég kíki fram og tjékki heheh...

Feimna stelpan í Álaborg :)

mánudagur, 26. maí 2008

Já ég veit ég á að vera að læra!!! ;)

Ég er nú búin að vera dugleg :) smá blogg pása núna.
Tók alla helgina og nú slatta af síðustu viku í lærdóminn, allur dagurinn í dag og á morgun fer líka í bækurnar.
Próf á miðvikudaginn kl.14 og svo annað á fimmtudaginn kl.9 og þá er ég komin í SUMARFRÍÍÍÍÍÍ :)

Á föstudaginn þarf ég svo á ná að gera ALLT sem ég þarf að klára áður en ég fer út :/ eins gott að það náist hehehe... En ef ekki æjjjhhhh þá bara reddast þetta ;)
Því verður alla vegana ekki breytt að ég mun fljúga til hans Gunna míns á mánudagsmorguninn kl.7.45 :)
Það verður svo gott að hitta hann aftur og komast í annað umhverfi, vonandi smá hita líka :)

En hvað var málið með Júróvisjón??? Eigum við e-ð að vera að ræða það??? En æj þau stóðu sig alla vegana alveg rosalega vel og maður gat nú alveg verið stoltur :)

jæja vélhlutafræðin öskrar alveg á mig hérna :( endalausar spennur og kraftar og vægi og ég veit ekki hvað og hvað.
Ekkert annað en ...


SPENNANDI!!!!!

laugardagur, 24. maí 2008

9 dagar :)


Enn ein vikan að verða búin! Næstum 9 VIKUR síðan Gunni fór NÍÍÍÍÍUUUUUUUU VIKUR!!! :O en aðeins 9 DAGAR eftir :)

Ég er búin að vera ágætlega dugleg að læra þessa vikuna! Þó sérstaklega í dag :) Svo er bara að mæta snemma í fyrramálið og halda áfram að vera dugleg og svo auðvitað horfa á JÚRÓ annað kvöld :)

Loksins loksins loksins komumst við upp úr þessari bjévítans forkeppni urrr....



Sænska plastið komst líka áfram...



Ótrúlegt að sjá þessa "gellu" !! '99 þegar hún vann Selmu með copy-aða ABBA laginu sínu þá var hún bara með plast brjóst en núna var hún með meira sameiginlegt BARBIE dúkku en venjulegri manneskju. Þegar hún hætti að brosa þá var andlitið á henni samt ennþá einhvern veginn brosandi.
Svo er hún líka komin með nýtt nafn, ekki bara eftirnafn, heldur líka fornafn!!! Kannski hún hafi þurft að skíra sig upp á nýtt þar sem meiri hlutinn af líkama hennar er nýr. hmmm.... ???

Ég reyndi að horfa aðeins á fyrri forkeppnina en úffff... þetta var bara leiðinlegra en allt :/ Á tímabili í seinni keppninni vorum við Jóhanna nú reyndar líka alveg að tapa okkur en hún var nú samt töluvert skárri.
Vonandi að það sé nú búið að sigta frá svona það allra leiðinlegasta þannig að aðal keppnin á morgun verði góð, eða alla vegana á horfandi :)

Miðvikudagurinn var líka STÓÓÓÓÓÓR dagur :) úffff.....

Ég horfði á stórkostlegasta fótboltaleik sem ég hef séð lengi lengi ef bara nokkurn tímann!!! Og auðvitað unnu mínir menn :) Ég var orðin svo stressuð á tímabili að ég hélt að hjartað í mér ætlaði að springa.
Við pabbi öskruðum eins og ljón hérna og hoppuðum út um alla stofu eins og bjánar hehehe.... Veit ekki hvað fólk hefur haldið um okkur ;)




Góða helgi pípúl og svo bara ÁFRAM ÍSLAND á morgun :)


miðvikudagur, 21. maí 2008

Hafnarfjörður

Ég átti leið inní Hafnarfjörð í dag sem er nú kannski ekki frá sögu færandi nema það að í hvert skipti sem ég fer INN Í Hafnarfjörð, þ.s keyri ekki bara í gegn, þá villist ég!!!

Ég hitti samt alltaf fyrir rest á réttan stað en hvernig mér tekst það veit ég ekki. ALLTAF þegar ég þarf að fara á St.Jósepsspítala þá villist ég, ALLTAF!! Ég hef nú ansi oft þurft að fara þangað í gegnum tíðina en ALDREI hefur mér tekist að staðsetja hann í kollinum á mér! Eina sem ég næ að tengja nálægt honum er húsið hennar Þórunnar frænku.

Í dag þurfti ég að ná í mömmu einmitt á þennan blessaða spítala. Ég keyrði bara í róleg heitum af stað með húsið hennar Tótu frænku í huga. Þegar ég beygði inní blessaða bæinn fauk þessi hugsun úr kollinum á mér!!! Og ég ákvað að fara aðra leið. EKKI góð hugmynd ef miðað er við fyrri reynslu.

Anyways.... Ég var viss um að núna rataði ég sko bara víst. Beygði þarna upp einhverja götu, keyrði næstum niður OJJJHHHH MAAAAAS (ruslakall á Ölmu máli), flaug þarna yfir hverja hraðahindrunina á fætur annarri en NEI enginn spítali eða merking um að spítala væri að finna í nágrenninu.

Ég hélt áfram..... Loksins sá ég hann!!! En bara bakið á honum :/ og hann var umkringdur húsum en engin gata virtist liggja að honum. Ég var við það að gefast upp, en ekki gat ég skilið mömmu bara eftir þannig að ég keyrði áfram.

Á endanum sá ég skilti sem á stóð St.Jósepsspítali og benti inn í götu. Vúhúúú... ég beygði inn götuna. Þetta var bara venjuleg íbúðargata!!!!! En þar sem ég gat hvergi snúið við ákvað ég að keyra áfram, gatan sveigðist og beygðist í allar áttir (furðulegt alveg!!). Þegar ég LOKSINS sá fyrir endann á henni blasti við mér ...

St.Jósepsspítali í allri sinni dýrð ;)



Ég skil ekki Hafnarfjörð!!!!

En ætli ég rati næst??? Spennandi.....

mánudagur, 19. maí 2008

Ég er að tapa mér!!!!

Hlakka svoooooooooooo til að hitta Gunna minn eftir TVÆR VIKUR :) :) :) :) :) :) :) :)

En alla vegana þá held ég að ég hafi náð að koma mér í læri gírinn í dag LOKSINS!! Var uppí skóla í 6 tíma að reikna :) Voða dugleg! Svo er bara eins gott fyrir mig að halda þessu áfram!!!!

Jæja ætla að horfa á TV-ið í smá stund :)

Gúte

sunnudagur, 18. maí 2008

15 dagar :)

Styttist og styttist í að ég fara til Baunalandsins :) Ég er orðin voða spennt... Myndi nú helst bara vilja vera að fara á morgun!!

Ég skellti mér á Palla á NASA á föstudagskvöldið. Langt síðan ég hef skemmt mér svona vel í bænum :) Man nú bara varla hvenær ég fór síðast á djammið í bænum!?!!?!?
Við vorum nú samt bara á NASA fórum ekkert annað. Ég kom heim um 6 og svaf nánast til að verða 16 á laugardaginn hehehe... Var nú bara nokkuð hress! En vá hvað ég myndi ekki nenna að djamma um hverja helgi :S Þó að maður sé kannski ekki beint þunnur þá er maður samt þreyttur og latur og kemur ENGU í verk. Myndi ekki tíma að eyða helgunum í svona. Þýðir þetta kannski að ég sé orðin gömul?? ;)

Næstu 2 vikurnar munu svo bara fara í að læra á daginn, hitta vini og ættingja á kvöldin og svo vonandi næ ég að pakka einhverju í tösku rétt áður en ég fer :)
Jæja ætla að skella mér í IKEA svona af því að ég nenni ekki að fara að læra ;)

fimmtudagur, 15. maí 2008

...

Það mættu margir taka þessa auglýsinug til sín...

Finnst hún alveg mögnuð!



Enginn karíus og enginn Baktus :)

Jámm ég er með tennur eins og krakki... Engin hola og engin skemmd :) Tannlæknirinn minn var voða ánægður með mig.

Ég var samt handviss um það um daginn að ég væri sko með þvílíka tannpínu já núna væri sko komið að því!! Ég væri POTTÞÉTT bara að fara að missa allar tennurnar. En síðan gleymdi ég þessu hehe... Dramadrottningin ég ;)

Ég fór áðan og fjárfesti í miðum á Palla :) Próflokadjamm háskólanna á morgun á NASA það verður sko stuuuuuuuuð!!!!!! :)
Austurvöllurinn var fullur af fólki að sóla sig og líka fullur af fullu fólki. Rónarnir alveg að fíla veðrið greinilega, sátu þarna og drukku sitt spritt. Verð nú að segja að það er til rosalega mikið af furðulegu fólki og það virðist safnast saman í 101 Rvk.

Ég þarf nú að fara að hella mér í lesturinn aftur, þó að ég sé engan vegin að nenna því í þessu æðislega veðri. En ég kemst víst ekki undan því....

Lilja þú ert sko að missa af hörku stuði á morgun :( get næstum því lofað þér að það verður skemmtilegra en síðast hahahaha....


Góða helgi :)

þriðjudagur, 13. maí 2008

Ekki sátt!!

Hvernig stendur á því að þegar maður fer til heimilislæknis FÁRVEIKUR ,og þeir hafa ekki græjur, getu né kunnáttu til að ganga 100% í skugga um hvað sé að, að þeir vísi manni ekki til sérfræðings eða hreinlega sendi mann uppá spítala þar sem réttar græjur og réttir læknar eru??

Ég fór til læknis í HAUST nokkrum sinnum út af því að mér hreinlega leið bara e-ð illa var alltaf e-ð asnaleg. Ok kannski erfitt að skera úr um af hverju ég var asnaleg þegar ég gat ekki beint bent á " já hér er mér illt ".
En nokkru seinna versnaði mér og já fór að pissa blóði, ekki skemmtileg reynsla það.
Ég fór á heilsugæsluna, hugsanlega mistök að fara ekki beint uppá Lansa, en þar var ég látin blæða í glas og engdist um af kvölum. Læknirninn fékk SJOKK þegar ég lét hana fá glasið en engu að síður þá sendi hún mig bara heim með nokkra daga skammt af pensilíni.

Síðan þá hefur þetta alltaf verið að poppa upp annað slagið og ég alltaf fengið bara pensilín. Ég er búin að vera eins og ég sagði áðan ASNALEG í allan vetur. Alltaf þreytt og líður e-ð illa :(

Um daginn sagði mamma bara hingað og ekki lengra og pantaði tíma fyrir mig hjá sérfræðingi. Ég fór til hans og vildi hann strax eftir stutt viðtal fá að spegla mig.
Speglunin var svo gerð í dag og vitið menn.....

Ég er búin að vera með blöðrubólgu í ÁR!!! Þannig að núna á ég að vera á úber sterku pensilíni í MÁNUÐ og ef það er ekki nóg þá þarf ég að fara í aðgerð.
Afleiðingar þess að vera með blöðrubólgu svona lengi eru ekkert djók!!! Svo ekki sé minnst á þau óþægindi sem ég hef þurft að þola.


Ég spyr.... AF HVERJU VAR ÉG EKKI SEND TIL SÉRFRÆÐINGS STRAX!!!?????


urrr... hvað ég er ekki sátt :(

mánudagur, 12. maí 2008

Helgin fór ekki alveg eins og planað var...

Planið var sem sagt að læra og læra og læra... EN mér til mikillar ánægju eða hitt þó heldur þá er ég búin að liggja í rúminu :(
Vona að ég nái að læra e-ð á morgun og svo er bara að krossa fingur og vona að ég skríði....

Ég ætla nú að óska pabba og Gunna innilega til hamingju með daginn :)

Bestu vinir þeirra urðu enskir meistarar í 17.skipti í dag :)

Nú eru bara 3 vikur í flutning :) Ég á að hringja í konu á Spítalanum í Álaborg á morgun út af vinnu í sumar. Spurning hvort mér takist að gera mig svona nokkurn veginn skiljanlega á dönsku hehehe....

Mig er farið að hlakka mikið til að fara út! Gaman að takast á við e-ð nýtt og spennandi!!! :) Og það er ekkert að skemma fyrir tilhlökkuninni þetta góða veður í Danmörku :)

Jæja það er víst kominn háttatími.

Góða nótt



laugardagur, 10. maí 2008

Hvítasunnan = próflestur

Einstaklega skemmtileg helgi framundan hjá mér :) Hún mun saman standa af vægisreikningum, kraftajafnvægi, skerspennum, bognun bita og svona mætti lengi telja!! En ég ætla samt ekkert að vera að væla undan þessu ;)

Prófið er á þriðjudaginn kl.9-12 og svo kl.14 fer ég í pínu aðgerð þannig að dagurinn er fullbókaður ;) síðan tekur við stærðfræði lærdómur.

Ég varð vitni af ansi fyndnu atviki í gær....

Ég fór aðeins til Dagmar í gærkvöldi og á leiðinni heim þá lenti ég á rauðu ljósi á Vífilstaðaveginum í Garðabænum. Á undan mér var lítill jeppi og í honum var ein kona.
Ég tók eftir því þegar ég stoppaði fyrir aftan hana að hún var að setja á sig maskara... ok ansi algengt að konur nýti tímann á rauðu ljósi til að mála sig hehe...
En alla vegana svo koma grænt! Hún rauk af stað og ég á eftir.
Hún var enn einbeitt að horfa í spegilinn og setja á sig maskarann.
Það eru nýkomnir upp hraðamælar á Vífilstaðaveginn og þegar hún brunaði framhjá honum þá mældist hún á 58km hraða (NB! hún var enn að mála sig í speglinum).
Rétt á eftir hraðamælinum kemur rosaleg hraðahindrun. Þar sem konan var nú ekki beint að einbeita sér að akstrinum þá brunaði hún á sínum 58km yfir hraðahindrunina.
Hún bókstaflega FLAUG!!!! hahahaha....
Ég hefði viljað sjá hvernig make up-ið tókst hjá henni!!!! Þar sem hún var ENN að setja á sig þennan blessaða maskara þegar hún skall á hraðahindruninna ;)

Jæja ætla að halda áfram að læra á meðan Gunni minn sleikir sólin í Köben :)

föstudagur, 9. maí 2008

Nr.2

Ákvað að skýra þetta blogg bara Nr.2 þar sem mér datt bara ekkert annað í hug! Svona er maður hugmyndasnauður þessa dagana....
Ég er að drepast úr leti!! Nenni svo engan vegin að vera ennþá í skólanum. Ég þarf að eyða helginni í að læra vélhlutafræði, sem er reyndar mjög skemmtilegur og virkilega áhugaverður kúrs EN ekki á 3 vikum!
Alltof mikið og merkilegt efni til að maður geti náð því á 3 vikum. Við erum nú búin að sjá ýmislegt sniðugt samt sem áður.
Fengum að sjá mynd af hendi, alvöru, sem var búið að saga af látnum einstaklingi og taka húðina af og sinarnar skoðaðar og settar í togþolspróf. Mjög flott!!

Í dag fengum við líka að sjá tvær mjaðmaskiptaaðgerðir.... og fullt af gerviliðum, hné, mjaðmir, axlir... Ansi magnað :)

Ætla að setja hér inn video... vara samt við að þetta er pínu brútal!



Sá annað svakalegt á YouTube í dag...

Hún er 7ára og er 400pund!!!




Jæja ég er farin að sofa!

Góða nótt :)

miðvikudagur, 7. maí 2008

Nr.1

Já þetta er fyrsta Álaborgarabloggið, þó að tæknilega séð sé ég ekki flutt ennþá ;) Ákvað að búa til lítið blogg svo fólkið okkar hér heima geti fylgst með okkur í Álaborginni.

Gunni er nú bara að njóta sólarinnar og sumarsins sem er víst komið í Baunalandi á meðan sitjum við hér í rigningunni og vonum að vorið sé alla vegana á næsta leiti svo ekki sé minnst á sumarið. Ég ætla samt að vera voða vond og óska þess að það verði rigninga sumar hér á Íslandi hehe... Er ekki alltaf gott veður í DK ef það er leiðinlegt veður hér??

En alla vegana þá er áætluð brottför mín þann 2.júní 2008 kl.7.45 tek svo innanlandsflug frá Köben til Álaborgar kl.16.15 og lendi stundvíslega (vonandi!!) hjá Gunna kl.17 :)
Þangað til verður sko nóg að gera hjá mér....

Vélhlutafræði lokpróf næsta þriðjudag (13.maí) og svo sjúkrapróf í stærðfræðigreiningu einhver tíman á bilunu 26.-30.maí. Vona að það verði nú bara 26. þá hef ég nokkra daga til að pakka og knúsa fólk áður en ég fer.

Ég bið bara að heilsa í bili :)
Já og btw ég kann EKKERT á þetta blogspot dæmi!!!