Síðustu dagar hafa verið okkur rosalega erfiðir :( Lítið sofið og erfitt að koma sér fram úr á morgnanna. Okkur hefur mest bara langað til að draga sængina upp fyrir haus og reyna að flýja þennan ljóta raunveruleika.
Okkur hefur fundist erfitt að vera svona langt í burtu þegar fjölskyldur okkar eru að ganga í gegnum þetta LJÓTA tímabil :(
En við verðum öll að reyna að vera bjartsýn og þakka fyrir það sem við þó höfum.
Pabbi sendi mér æðislegt email í dag :)
Þetta er það sem hann sagði: " Við verðum að þreyja þorrann, maður getur sætt sig við það. Þetta getur varla farið neðar alla vegana, þetta snýst bara um peninga, það sem íslendingar þurfa að gera núna er að taka utan um hvern annan og smá klapp á öxlina, ég held að þjóðin hafi verið búin að missa sjónar af því sem mestu máli skiptir, sem er fólkið sjálft og heilsan.
Starfsfólk Glitnis fór út í hádeginu til að faðma hvert annað, vonandi endar þetta ekki með einhverri lausung og framhjáhaldi eða kynferðislegri áreitni. Ég held að þetta verði góð lexía, en bara heldur sársaukafull fyrir marga."
Þannig að ég held að við ættum bara að vera góð hvert við annað og trúa því að við komumst öll í gegnum þetta tímabil :)
Elska ykkur og er bara víst stolt af því að vera ÍSLENDINGUR :)
Engin ummæli:
Skrifa ummæli