sunnudagur, 1. febrúar 2009

fimmtudagur, 29. janúar 2009

...

Fólk kvartar undan bloggleysi en svo þegar ég blogga þá kommentar ENGINN (nema þú Lilja mín).
Ég er því komin í verkfall og mun ekki blogga fyrr en fólk hefur lært að nota kommentin.

laugardagur, 24. janúar 2009

blogg blogg...

Jæja fólk bara farið að kvarta!!!

Fríið okkar er búið að vera ljúft! Skelltum okkur í bíó á mánudaginn á Changeling og VÁ! mæli sko með henni :O Rosaleg mynd!!

Á þriðjudaginn fórum við í smá verslunarleiðangur hér í Álaborginni. Skelltum okkur í Jysk, Bahne og Bilka og fjárfestum í nokkrum Rosendahl glösum og skálum, svo keyptum við kaffibolla, kaffikönnu, hnífapör og alls kyns dót sem okkur vantaði í búið :o) það er orðið rosa fínt hjá okkur :o)

Á miðvikudaginn hjóluðum við svo upp í skóla og á bókasafnið og svo niður í bæ þar sem ég prófaði í fyrsta skipti sundlaugina hér. Eftir að hafa synt nokkrar ferðir þá var hjólað heim. Þannig að afrakstur dagsins voru nokkrir hjólaðir kílómetrar (c.a 15) og nokkrir syntir metrar. Ekki slæmt það :o)

Á fimmtudaginn vorum við svo bara heima og þrifum íbúðina enda von á gestum á föstudaginn.

Á föstudaginn fórum við nú bara í smá göngu niður í dal, í ÓGEÐSLEGU roki og kulda, og gáfum öndunum og svönunum og nokkrum mávum smá brauð. Um kvöldið komu svo Jón Ingi og Laufey í mat til okkar. Það var rosa gaman hjá okkur langt frameftir nóttu :o) Ég býst nú við að svona kvöld verði sko endurtekið á næstunni!!

Í dag erum við nú bara búin að vera LÖT með stórum stöfum.... Rúm vika eftir af fríi en ekkert planað nema bara að hafa það áfram svona gott.

Við biðjum voða vel að heilsa heim í mótmælin....



sunnudagur, 18. janúar 2009

Frí :o)

Það er dimmt, kalt og rigning.... er það ekki alveg kjörinn dagur til að vera bara heima í náttfötum og hafa það næs?? ;) ég er alla vegana enn í náttfötunum mínum og er mikið að spá að skríða bara upp í rúm og halda áfram með bókina mína :) Gunni greyið klárar ekki prófin fyrr en á morgun... En þá verður lífið sko ljúft eða ljúfara :o)

Við vorum að spá í að leigja okkur bíl og keyra til Þýskalands en það er svo rándýrt að leigja bíl!!! Það sem er svona dýrt er það að maður fær bara 100km innifalda í leigunni og hver kílómetir eftir þá kostar 2kr. Og þar sem það eru um 700km sem við þyrftum að keyra í allt þá yrði þetta soldið dýrt.
Þannig að við erum eiginlega búin að ákveða að fá okkur bíl og keyra bara til Århus og fara í IKEA ;) viljum frekar eyða peningnum okkar þar en í kílómetra...

Svo ætlum við bara að hafa það gott í fríinu okkar :o) kannski við skellum okkur í zoo og kíkjum á nýja ísbjörninn hehe.. Svo er ég með alveg fullt af bókum sem ég ætla að lesa ;)

Svo ég svari nú henni Jóhönnu þá er ég ekki enn að vaska upp hehe... Það tók nú samt smá tíma :p Gunni þekkti varla íbúðina aftur þegar hann kom úr skólanum á föstudaginn :o) Var voða dugleg að þrífa og taka til!!

Jæja bókin kallar ;o)

Bið að heilsa heim :o)

föstudagur, 16. janúar 2009

STÓRT BROS :O)

Því einkunnin varð ein stór og feit ....

T Ó L F A!!!!

Ég gæti ekki verið ánægðari :o)

Í dag verður sko tekið til hendinni hér heima því þar sem við erum bæði búin að vera í prófum þá er íbúðin varla íbúðarhæf hehe...
Annars er svo frí hjá mér til 2.febrúar :)

Gleði gleði...

Uppvaskið kallar ;)



fimmtudagur, 15. janúar 2009

Kveðja

Mig langar bara að kveðja ykkur ef ske kynni að ég myndi ekki lifa af næsta klukkutima... Sit hér upp í skóla að bíða eftir að komast inn i munnlegaprófið úr verkefninu mínu. Ég er með HUGE hnút i maganum og langar mest bara til að stinga af hehe...

Læt vita hvernig þetta fer :/ Ég vona nú að ég muni komast í gegnum þetta!!




sunnudagur, 11. janúar 2009

Nokkrar myndir...

... fyrir ykkur sem hafa ekki facebook ;)

Við fengum að sjá jólasnjó :)

Steinarnir mínir :)

Alman mín og Ída sem kom úr jólapakkanum :)

Gunni fékk loksins að knúsa Töruna sína :)

Það var MIKIÐ borðað af hrikalega góðum mat!!! úfff....


Og ég fékk að knúsa allt uppáhalds fólkið mitt :)

Takk fyrir æðislegan tíma heima :*

þriðjudagur, 6. janúar 2009

Komin heim til DK

Ætla nú bara rétt að láta ykkur vita að við komumst á leiðarenda :) Það verður ekkert almennilegt blogg fyrr en ég er búin í prófum, 15.janúar.

Langaði bara að segja takk fyrir okkar og það var alveg æðislegt að koma heim um jólin!!

Kossar og knús frá kuldanum í Áló