Jæja fólk bara farið að kvarta!!!
Fríið okkar er búið að vera ljúft! Skelltum okkur í bíó á mánudaginn á Changeling og VÁ! mæli sko með henni :O Rosaleg mynd!!
Á þriðjudaginn fórum við í smá verslunarleiðangur hér í Álaborginni. Skelltum okkur í Jysk, Bahne og Bilka og fjárfestum í nokkrum Rosendahl glösum og skálum, svo keyptum við kaffibolla, kaffikönnu, hnífapör og alls kyns dót sem okkur vantaði í búið :o) það er orðið rosa fínt hjá okkur :o)
Á miðvikudaginn hjóluðum við svo upp í skóla og á bókasafnið og svo niður í bæ þar sem ég prófaði í fyrsta skipti sundlaugina hér. Eftir að hafa synt nokkrar ferðir þá var hjólað heim. Þannig að afrakstur dagsins voru nokkrir hjólaðir kílómetrar (c.a 15) og nokkrir syntir metrar. Ekki slæmt það :o)
Á fimmtudaginn vorum við svo bara heima og þrifum íbúðina enda von á gestum á föstudaginn.
Á föstudaginn fórum við nú bara í smá göngu niður í dal, í ÓGEÐSLEGU roki og kulda, og gáfum öndunum og svönunum og nokkrum mávum smá brauð. Um kvöldið komu svo Jón Ingi og Laufey í mat til okkar. Það var rosa gaman hjá okkur langt frameftir nóttu :o) Ég býst nú við að svona kvöld verði sko endurtekið á næstunni!!
Í dag erum við nú bara búin að vera LÖT með stórum stöfum.... Rúm vika eftir af fríi en ekkert planað nema bara að hafa það áfram svona gott.
Við biðjum voða vel að heilsa heim í mótmælin....

2 ummæli:
alltaf gaman að fá blogg frá þér sæta:) sammála þér með the changeling.. þvílíkt góð mynd!!:)
RX Pharmacy Online. Order Generic Medication In own Pharmacy. Buy Pills Central.
[url=http://buypillscentral.com/about_en-us.htm]Discount Viagra, Cialis, Levitra, Tamiflu Pharmacy No prescription[/url]. Indian generic pills. Cheapest pills pharmacy
Skrifa ummæli