sunnudagur, 18. janúar 2009

Frí :o)

Það er dimmt, kalt og rigning.... er það ekki alveg kjörinn dagur til að vera bara heima í náttfötum og hafa það næs?? ;) ég er alla vegana enn í náttfötunum mínum og er mikið að spá að skríða bara upp í rúm og halda áfram með bókina mína :) Gunni greyið klárar ekki prófin fyrr en á morgun... En þá verður lífið sko ljúft eða ljúfara :o)

Við vorum að spá í að leigja okkur bíl og keyra til Þýskalands en það er svo rándýrt að leigja bíl!!! Það sem er svona dýrt er það að maður fær bara 100km innifalda í leigunni og hver kílómetir eftir þá kostar 2kr. Og þar sem það eru um 700km sem við þyrftum að keyra í allt þá yrði þetta soldið dýrt.
Þannig að við erum eiginlega búin að ákveða að fá okkur bíl og keyra bara til Århus og fara í IKEA ;) viljum frekar eyða peningnum okkar þar en í kílómetra...

Svo ætlum við bara að hafa það gott í fríinu okkar :o) kannski við skellum okkur í zoo og kíkjum á nýja ísbjörninn hehe.. Svo er ég með alveg fullt af bókum sem ég ætla að lesa ;)

Svo ég svari nú henni Jóhönnu þá er ég ekki enn að vaska upp hehe... Það tók nú samt smá tíma :p Gunni þekkti varla íbúðina aftur þegar hann kom úr skólanum á föstudaginn :o) Var voða dugleg að þrífa og taka til!!

Jæja bókin kallar ;o)

Bið að heilsa heim :o)

5 ummæli:

Lilja sagði...

hahaha Ikea er eflaust miklu skemmtilegra en Þýskaland:)
þegar þú ferð í zoo-inn þá verðuru að tékka hvort það séu Capybara þar og taka mynd af þeim:)
Sakna þín sæta

Ásdís sagði...

heyrðu það eru þannig dýr minnir mig!! komumst við einhver tíman að því hvað þau heita á íslensku??
Ég skal taka mynd ;)

sakna þín líka skvíz

Lilja sagði...

haha snilld:) nei ég held þau heiti ekki neitt á íslensku

Nafnlaus sagði...

Hvar ertu kona??? ég er með svaka slúður handa þér!!!!! en hitti þig ekkert á msn :(
kv. Sunneva

Nafnlaus sagði...

Hvar er hún? í fríi... en það sem hún veit ekki að hún er ekkert í bloggfríi eða msn-fríi bara í skólafríi