þriðjudagur, 16. september 2008

Danmörk

Það hefur margt breyst síðustu mánuði ...

  • ég fer í STRÆTÓ í skólann og úr og hann er nánast alltaf fullur!!
  • ég fer út í búð á HJÓLI!!
  • ég tala þrjú tungumál yfir daginn og er þ.a.l frekar steikt í hausnum ALLTAF!!
  • ég nota regnhlíf þegar það rignir!!
  • ég þarf að passa mig að stíga ekki á froska og slímuga snigla þegar ég fer út að labba á kvöldin!!
Já þetta er svolítið öðruvísi en heima en ég er að venjast þessu :)

Danir eru líka ÖÖÖrlítið öðruvísi en íslendingar ...

  • það er í tísku að vera í gúmmístígvélum
  • gamlar konur ganga með sturtuhettur á hausnum ÚTI!!
  • þeir tala voðalega furðulegt tungumál
  • þeir eru voðalega uppteknir af því að spara (e-ð sem íslendingar þekkja ekki)
  • þegar þeir sitja á hjóli þá hika þeir ekki við að hjóla yfir þig ef þú ert óvart fyrir!!
  • þeir taka hundana sína með í strætó

En já ég er líka að venjast þessu öllu.

Þó að danirnir séu stundum soldið halló þá erum við samt alltaf jafn töff finnst ykkur það ekki?? ;)

Þetta eru nýju skólamyndirnar af okkur :)


5 ummæli:

Lilja sagði...

hahaha vó hvað þið eruð myndarleg:)

Nafnlaus sagði...

alveg sammála Lilju... ja eða eitthvað.
Í upptalningunni um Dani má mæta við... þjást ekki af mikilli þjónustulund

Ásdís sagði...

hahahaha... já segðu!!! ótrúlegt að þurfa að bíða í RÖÐ á kassa á meðan starfsfólkið stendur og er að spjalla saman!!! Alveg pirrandi..

Unknown sagði...

HAHAHAHAHAHA

Vá hvað maður kannast við þennan lista !!

Tískustígvél og regnhlífar eru mjög spes, og sniglarnir maður ojjj það er ógeðslegt að stíga óvart á þá !!!

En að taka hundana með í Strætó, S-tog og Metro - það er bara snilld og eitthvað sem við eigum að taka upp heima.

En þú hefðir líka mátt bæta við frekar furðulegum matarvenjum ...

kv
Silja

Nafnlaus sagði...

jiiiii hvað þið eruð myndó!!! :D