miðvikudagur, 4. júní 2008

...

hmmmm... Blogg númer tvö í dag ;)

Ég komst í sturtu í dag Daniel greyið skrapp út og ég var sko fljót að stökkva í sturtuna. Fyrir þá sem ekki vita þá er sko sturtan inn af herberginu hans ;)
Ótrúlegt en satt þá talaði ég meira að segja smá við hann í dag! Ég veit ég er ótrúlega huguð kona hahaha..

Fór í H&M shoppaði mér 3 boli þar sem maður á nú ekkert alltof mikið af sumarfötum. Sá líka sæta skyrtu í Vero Moda og kjól í einhverri búð sem ég man ekki hvað heitir.
Gunni er búinn að vera voða duglegur að læra enda styttist í próf hjá honum úfff.... Ég var ein heima í allan dag. Og eftir að ég kom heim úr bænum þá fékk ég mér smá að borða og las smá en eftir smá tíma var mér nú farið að leiðast soldið!! Sérstaklega þar sem tölvan var betteríslaus og Gunni var með hleðslutækið í töskunni.
En já mér sem sagt leiddist... Og haldiði að mín hafi bara ekki farið að þrífa!!! Jújú byrjaði á eldhúsinu. Skrúbb skrúbb skrúbb... Vá hvað mig hlakkar til að fá MÍNA eigin íbúð!!!!

Við ætlum í dýragarðinn um helgina :) maður verður nú að sjá þessa helstu staði!! Svo þurfum við líka að kíkja í BILKA á hjól handa mér. Kannski fyrst við ætlum þangað að maður kíki aðeins á úrvalið af diskum og glösum og svona og aldrei að vita nema maður fari aðeins í JYSK (rúmfatalagerinn) en hann er einmitt á sama stað og BILKA.

Á morgun er víst frídagur hér í Baunalandinu og hvað á ég þá að gera af mér??? Ég bara spyr hmmmm.....

Jæja ætla að fara að horfa á sjónvarpið :)

Kossar og knús

1 ummæli:

Nafnlaus sagði...

úúú þú ert hetja að hafa komið þér í sturtu :D
væri maður til í svona hita og sól!! væri nú bara ánægð með svona 20 gráður :)
en gott að vita að það sé alltílagi með þig þarna í útlandinu