miðvikudagur, 5. nóvember 2008

5.nóvember 2008

Loksins loksins loksins hefur bandaríkjamönnum tekist að kjósa já og telja rétt :)
Það verður gott að fá loksins mann sem er skrifandi og talandi í hvíta húsið! Og varaforseta sem heldur ekki að Rússland sé við hliðina á Alaska.

Dóra er komin og farin. Það var æðislegt að fá að sjá hana þó að það hafi nú verið mjög stutt :) Hlakka bara til að fá fleiri heimsóknir... býður sig einhver fram??? ;)
En annars styttist alltaf í að við komum heim en alltof langt samt finnst mér.

Það er að verða voða jólalegt hérna, hamast við að skreyta niðri í bæ enda J-dagurinn á föstudaginn. Verður án efa gaman að kíkja í bæinn þá :)



Við erum að fara á gala-forsýningu á James Bond á fimmtudaginn og svo er bara ammmæli á laugardaginn :O :O
Ætlum bara að hafa það kósí, elda góðan mat en ef þið viljið þá megiði alveg kíkja í köku og kaffi ;)
Það kom pakki frá mömmu í gær og Gunni setti hann svo hátt upp að ég næ honum ekki til að kíkja hehe...

En jæja ætla að nýta daginn og byrja að læra :)

Bið að heilsa heim ...

5 ummæli:

Nafnlaus sagði...

Jæja gott að heyra loksins frá þér stelpa, en ekki slúður frá ballinu ?
kv. Sunneva

Nafnlaus sagði...

Ji já loksins kemur einhver leiðtogi í BNA sem virðist hafa eitthvað í toppstykkinu!! Ég var svooo hrædd í gærkvöldi þegar ég var að fara að sofa að Makkein mundi vinna.Hefði verið svooo bandarískt eitthvað. En þá hefði bara sama gamla Bush- hugarfarið haldið áfram! þannig að bara HJÚKKKKKKKKKKKKK :D

Já gleymdir alveg að segja frá þessu balli!! hehehe... ;)
kv. Jóhanna

Ásdís sagði...

haha... ég stoppaði svo stutt á þessu blessaða "balli" sökum tópasdrykkju fyrr um kvöldið að ég hef ekkert að segja :/
Nema það kannski að þetta var nú ekkert beint fyrir mig þetta fólk.
Æj ég veit ekki ....

Lilja sagði...

haha leiðinlegt með ballið... en ef ég kem kíki í ammælisheimsókn, fæ ég þá kökur og kaffi?:)
kannski er þetta ógeðslega heimskuleg spurning, en hvað er J-dagurinn?

Ásdís sagði...

ja eg myndi sko baka fyrir thig :) j-dagurinn er bara auglysing fyrir jolabjorinn fra Tuborg!
Thad er svaka mikid gert ut a thennan bjor og their eru med eitthvad hullumhæ i nanast hverjum bæ herna i DK thennan dag. Thetta er ordin hefd herna 1.fostudag i november a hverju ari.