mánudagur, 26. maí 2008

Já ég veit ég á að vera að læra!!! ;)

Ég er nú búin að vera dugleg :) smá blogg pása núna.
Tók alla helgina og nú slatta af síðustu viku í lærdóminn, allur dagurinn í dag og á morgun fer líka í bækurnar.
Próf á miðvikudaginn kl.14 og svo annað á fimmtudaginn kl.9 og þá er ég komin í SUMARFRÍÍÍÍÍÍ :)

Á föstudaginn þarf ég svo á ná að gera ALLT sem ég þarf að klára áður en ég fer út :/ eins gott að það náist hehehe... En ef ekki æjjjhhhh þá bara reddast þetta ;)
Því verður alla vegana ekki breytt að ég mun fljúga til hans Gunna míns á mánudagsmorguninn kl.7.45 :)
Það verður svo gott að hitta hann aftur og komast í annað umhverfi, vonandi smá hita líka :)

En hvað var málið með Júróvisjón??? Eigum við e-ð að vera að ræða það??? En æj þau stóðu sig alla vegana alveg rosalega vel og maður gat nú alveg verið stoltur :)

jæja vélhlutafræðin öskrar alveg á mig hérna :( endalausar spennur og kraftar og vægi og ég veit ekki hvað og hvað.
Ekkert annað en ...


SPENNANDI!!!!!

3 ummæli:

Nafnlaus sagði...

heyrðu og svo var ekkert sýnt heldur þegar við fengum LOKSINS 12 stig! Það var sýnt frá ÖLLUM hinum þegar þau fengu 12 stig. Ég var mjög fúl yfir þessu :(
Annars horfði ég bara á flutning íslenska lagsins og svo stigagjöfina. Var ekkert spennt fyrir þessu núna... held maður verði að vera fullur til að horfa á þetta ;)

Nafnlaus sagði...

Hmmmm þú mátt ekki fara strax :( ég er ennþá ekkert búin að hitta þig... svindl
Kv. Sunneva

Nafnlaus sagði...

Ég bara trúi ekki að þú sért FARIN!!! :( :( :(