miðvikudagur, 4. júní 2008

Ég er komin!!!!!

Jæja þá er mín mætt til Áló :) Ótrúlegt!!!!
Ferðin gekk vel og Gunni var mættur útá flugvöll að sækja mig þegar ég loksins lenti hér í Álaborg.

Veðrið hérna er rugl gott!!! Úfff... Og veðurspáin fyrir helgina ó mæ!!! Bara spáð 26-27 stiga hita!!! Við Gunni fjárfestum okkur í viftu inní herbergið okkar í gær. Vorum að kafna í fyrrinótt. Hrikalegt að sofa í svona hita.

Gærdagurinn var æði :) Auðvitað geggjað veður þannig að við ákváðum að fara bara í Kildeparken sem rosalega flottur garður hérna. Lágum þar eins og skötur en Gunni var nú samt líka að læra, ótrúlega duglegur, á meðan ég sólaði mig og las.

Ég er mikið að spá hvort ég eigi að skella mér í H&M núna en þar sem ég þyrfti nauðsynlega að fara í sturtu áður og ég veit ekki hvort ég sé ein heima eða ekki þá þori ég ekki inní herbergið hans Daniels hmmmm.....
Það er soldið spes að búa svona þrjú saman en það verður nú bara stutt. Ég hlakka nú samt mikið til þegar við fáum okkar eigin íbúð :)
Ok þá er það ljóst... ég er ekki ein heima. Eða var hann kannski að fara eitthvað út?? Kannski ég kíki fram og tjékki heheh...

Feimna stelpan í Álaborg :)

2 ummæli:

Lilja sagði...

haha þú ert svo mikill kjáni:)ef ég væri þú þá myndi ég án efa skella mér í h&m;)
núna er ég bara að bíða eftir að fara upp á flugvöll... og svo er það bara leesburg, tysons, georgetown, target og alveg örugglega eitthvað meira:p sorry sorry sorry skal hætta að monta mig:)

Unknown sagði...

Jæja

Til hamingju með að vera loksins komin :D

Gott að ferðin gekk vel, og þú veist að þegar sumir eru í útlöndum á meðan sumir eru á klakanum, þá er bannað að monta sig á veðurspá ;)

Vona að þú hafir það ógeðslega gott í baunalandinu, og við sjáumst svo seinna