mánudagur, 17. nóvember 2008

Veik :(

Og er komin með nóg af því :( Var veik ALLA helgina mér til mikillar ánægju. Hélt að ég væri að verða góð í gær og yrði orðin fín í dag. En nóttin var vibbi og ég er enn hrikalega slöpp :( og ekki hjálpar samviskubitið sem ég er með!!!
Þar sem ég stóð varla í lappirnar í morgun þá gat ég ekki mætt í status með grúbbunni minni :( En vona að þau muni nú fyrirgefa mér það!!

Annars er veturinn að koma á föstudaginn en það er spáð snjókomu og líka á laugardaginn... Verð nú að segja að ég hlakka nú bara pínu til að sjá snjó :) Gunni er nú ekki sammála mér þar sem hann hjólar í skólann og það gengur nú ekki í hálku og snjó. En kannski verður helgin bara hvít :)

Mánuður í heimkomu :) :) :)

2 ummæli:

Nafnlaus sagði...

ó mæ god bara mánuður!! :)
Knús frá Jóhönnu

Lilja sagði...

Þau hljóta nú að fyrirgefa þér veikindin... ekki eins og þetta hafi verið planað hjá þér
:)