föstudagur, 7. nóvember 2008

Er kominn desember??

Eða eru jólin í Danmörku í nóvember??

Það er búið að skreyta allan bæinn, fólk er byrjað að versla jólapappír og skraut á fullu. Það er meira að segja komin jólasería í tré hérna í garðinn við hliðana á okkur!!! Það er NÓVEMBER fólk!!!
En æj mér finnst þetta samt alveg ágætt :)
minnir mig bara á það að það styttist í heimferð.

Við skelltum okkur á forsýningu á Bond í gær. Þetta var Gala forsýning og átti fólk að mæta í jakkafötum og kjólum. Við hlógum nú bara af því og fórum bara frekar venjulega klædd og bjuggumst nú ekki við að fólk myndi virkilega mæta svona fínt í BÍÓ.
En JÚ!!! það var bara eins og við værum mætt á árshátíð!!! Menn í jakkafötum og konur í SVAKA kjólum :O haha...
Við vorum með þeim fáu sem voru bara venjulega klædd, frekar spes.
Myndin var annars alveg ágæt, langt frá því að vera besta Bond mynd sem ég hef séð. Freker þunnur söguþráður og æj ...

Ætla ekki að hafa þetta neitt lengra núna.

Segi bara góða helgi :)

3 ummæli:

Nafnlaus sagði...

Happy B-day :D

KV. Jóhanna

Lilja sagði...

Til hamingju með ammælið elsku dúllan mín:*

Nafnlaus sagði...

Hún á afmæl´í dag,
Hún á afmæl´í dag trallalalala
Til lukku með daginn krúttið mitt. Knús og koss frá okkur Júlíu
Kveðja Sunneva