föstudagur, 14. nóvember 2008

Það er komin helgi :)

Ég er búin að bíða eftir helginni síðan á sunnudaginn!!! Ég er eiginlega farin að bíða eftir næstu helgi líka :/ Ég verð alla vegana voða fegin þegar mánudagurinn er búinn!
Ég er að fara í "próf" þetta er svona status tjékk fyrir verkefnið. Frekar furðulegt finnst mér! Við erum búin að vera að vinna í þessu í mánuð sem þýðir að núna eigum við nánast allt verkefnið eftir. Skil ekki alveg af hverju það er verið að eyða þessum litla tíma sem við höfum til að klára þetta verkefni í e-ð svona bull :(

Vikan er annars búin að vera fín, reyndar búið að rigna og rigna og það birtir varla til á daginn sem er frekar þreytandi svona til lengdar.
Ég lenti meira að segja í hagl/rigningu í gær á leðinni heim úr strætó, ég varð RENNANDI blaut!!!!

Gunni er í lokaprófi núna í Regnskabsanalyse, ég held að hann eigi eftir að rúlla þessu upp :) hlýddi honum aðeins yfir í gær og komst betur að því að svona buisness fög eru ekki fyrir mig hehe... Lærði samt smá af þessu ;)

Jiii ég talaði við Lilju í gær og komst að því að ég er gjörsamlega dottin út úr öllu :O Það er komin sería SEX af OTH og ég vissi það ekki :O og það er meira að segja búið að semja um seríu SJÖ! Ég barasta á ekki orð :/

Jæja ætla að fara að baka súkkulaðiköku fyrir Gunna (og mig líka ;) )

Góða helgi :)

9 ummæli:

Nafnlaus sagði...

OTH í alvöru!!!! :o wooohooo!!!!!
Eins gott að sjár einn fari EKKI að hætta svo maður geti séð þetta. Þar sem ég kannnn ekkert að dánlóda svona! :s jebb ég er l-úði tzz tzz
kv. Jóhanna

Nafnlaus sagði...

wow ef þér líður betur þá vissi ég ekki af sjöttu seríu af OTH ;)

og ég kommentaði við bloggið á undan ;)!

svo máttu senda mér smá sneið af súkkulaðikökunni.......... takk og bless ;)

kv. Sigrún x-pera

Unknown sagði...

ooooog OTH er .... *ljóska* :P

Nafnlaus sagði...

nei okei ég kommentaði við bloggið á undan en það virðist ekki hafa komið inn .. damn ... anywho ég skrifaði bara hvað mér finndist þetta krípí með fóstureyðingu á 25.viku .. og hugsaði til litlu frænku sem fæddist 3 mánuðum fyrir tímann og var jafnstór og venjulegur penni og var vart hugað líf ... en núna er hún 21. árs og á gullfallegan 2 ára gutta .. en samt hefði verið hægt að eyða henni rétt áður en hún fæddist .. krípí ! og ég er sammála þér - ef það tekur manneskju 25 vikur að ákveða hvort hún vilji eða ekki barnið .. þá er eitthvað að .....

kv. Sigrún x-pera :)

Ásdís sagði...

Já þetta er ekki lengur FÓSTUR heldur BARN þannig að tæknilega séð er ekki hægt að tala um FÓSTUReyðingu heldur morð. Eða það finnst mér. Málið er annað ef barnið er mikið fatlað þannig að því sé ekki hugað líf ef það fæðist.
Það er líka svo viðbjóðslegt hvernig þeir fara að þessu :/

Og Silja OTH er One Tree Hill ;) ég er bara svo mikið nörd að kalla það OTH!

Lilja sagði...

hahaha:) þú ert svo yndisleg;)
ég vil líka fá köku... það vill enginn baka fyrir hérna heima!

Nafnlaus sagði...

og nú er helgin búin!!! :( vildi að það væri oftar helgar!!!
KV;Jóhanna

Nafnlaus sagði...

Sammála Jóhanna... ég vil hafa helgi fimm sinnum í viku! Við breytum þessu þegar við förum á þing!
Dagmar

Nafnlaus sagði...

Ásdís guð minn góður OTH...jakkk ekki segja mér að þú horfir á þetta :-) hehe....bjakkkkkkk.