mánudagur, 20. október 2008

Fyrir Jóhönnu :)

Já já ofurbloggarinn fór í frí hmmmm....

Voða voða voða lítið að frétta héðan!! Erum reyndar búin að kaupa okkur kort í ræktina þið mynduð fá KAST ef þið séuð þessa "stöð" hahahaha....

Málið var það að það er ekki alveg líkamsræktarstöð hér á hverju horni eins og heima og við vorum ekki alveg að sjá það ganga að við þyrftum að hjóla lengst út í r***.
Þannig að Gunni fann stöð sem er hér rétt hjá (10mín að hjóla). Við ákváðum að skella okkur bara og kaupa kort!!! Ég hef ALDREI séð svona stöð áður haha... ELDgömul tæki (virka samt vel ;) ) og þvílík TRÖLL að æfa þarna. Ég tek mig vel út með mín 5kg haha...
En þetta er annars bara mjög fínt :) Gott að vera farin að hreyfa sig aftur!!! Er svona að vona að ég muni fá einhverja auka orku með þessu! Er búin að vera ógeðslega orkulaus í allt haust!!!!
Líst ekkert á þetta lengur....


Ég var í verklegum tíma í síðustu viku. Vorum í 2 heila daga að vinna með alveg ótrúlega magnað og skemmtilegt verkefni :)
Við vorum að vinna með tækni sem er hægt að nota til að stýra hjólastólum með ertingu á vöðvum. Við áttum að finna góða vöðva sem hægt væri að nota og prófa okkur áfram. Svo var keppni þar sem við stýrðum LEGO hjólastólunum okkar í gegnum braut sem var gerð fyrir okkur og lenti minn hópur í 2.sæti :)
Þetta var ÓTRÚLEGA gaman :) Ji og vitið hvað haha... Í keppninni var boðið upp á BJÓR í boði kennarans okkar!!! :O svona er að læra í Danmörku ;)

Gunni varð líka frægur á Jótlandi á föstudaginn ;) haldiði að hann hafi ekki bara komið í svæðisfréttunum!!! Ótrúlega frægur :) hehe... Það var verið að taka viðtal við strák sem er með honum í grúbbu og Gunni sást í fréttinni hehe... Tók sig rosa vel út ;)

Dóra kemur eftir 2 vikur :) og svo styttist í afmælið mitt :O ó mæ ó mæ ....

Jæja bið að heilsa heim og ég skal reyna að vera duglegri að blogg...

3 ummæli:

Nafnlaus sagði...

heheeh... styttist í TUTTUGUOGSEX ÁRA afmælið :D En ég get alveg sagt þér að ég þroskaðist ekkert frá 25 til 26 þannig að þetta er engin mega breyting ;)
Takk fyrir bloggið :D Verður að vera dugleg að blogga svo ég geti lesið eitthvað annað en skólabækur. Ekki að ég sé voða dugleg í því hhmmm :s
knús og kossar :*

Lilja sagði...

alltaf gaman að fá nýtt blogg frá þér elskan:)
Alveg væri maður til í áfengar gjafir frá kennurum:) obobobb

Nafnlaus sagði...

Já líst mér á þig kella :) Mig er farið að vannta að tala við þig, gengur ekkert hjá okkur að hittast á msn. Farðu nú bara að drífa þig heima stelpa ;)Knús og kossar frá okkur júlíu
kv. Sunneva