föstudagur, 19. september 2008

Komin helgi :)

Og vika 3 í skólanum BÚIN :) Verkefninu var skilað inn í dag svo nú er "bara" prófið eftir sem ég kvíði alveg ÓGEÐSLEGA mikið fyrir :(

Tölvan er komin í hús og líka sendingin að heiman :) Þannig að nú er ég held ég bara flutt að heiman :O
Komin með myndir og kertastjaka og skrifborðið mitt og auðvitað allt skóladótið þannig að nú hef ég pennaveski til að fara með í skólann :)

Annars er voða lítð nýtt að frétta af okkur engin stór plön fyrir helgina nema eitt stykki afmæli hjá Klaus.
Annars ætla ég bara að reyna að undirbúa mig fyrir mitt fyrsta munnlegapróf hér í Danaveldi :/

Góða helgi og kossar og knús heim :)

2 ummæli:

Nafnlaus sagði...

vona að þú hafir ekki dáið úr reykeitrun eftir afmælið ;)

Nafnlaus sagði...

það er spurning um að fara með súrefnisgrímu þegar farið er innan um Dani... eða bara úðabrúsa til að slökkva í þessum vibba