laugardagur, 14. júní 2008

Bloooooooooogggggg....

Já fólk bara farið að hóta að senda gíróseðla fyrir þá daga sem ég blogga ekkert! ;) Þannig að here it comes....

Laugardagur í dag AFTUR!! mér finnst alltaf vera helgi :) næstum TVÆR vikur síðan ég kom hingað!! Fljótt að líða og mér er strax farið að líða nánasta eins og heima hjá mér :)

Á miðvikudaginn fór ég í bumubufata leiðangur með Dillu og uuu... Ernu? ( ji ég er ömurleg að muna nöfn :/ ) Við skoðuðum bumbuföt um allan bæ, fengum okkur svo lunch og svona kósý. Það var rosa fínt :) Svo fór ég aðeins heim með Dillu og við kjöftuðum í smá stund og sóttum svo Halldór litla strákinn hennar til dagmömmunnar. Jiminn hvað hann er sætur!!! :) algjört krútt!!!!

Fimmtudagur..... uuuuu.... hvað gerði ég á fimmtudaginn???? Gunni fór alla vegana í TVÖ próf takk fyrir pent!!! Hann segist ekki vita hvernig honum hafi gengið en ég er viss um að þetta hafi gengið vel hjá honum :)

Já nú man ég ... Ég var ein heima allan daginn, var að leita mér að vinnu og svona. Svo fór Gunni að hitta grúbbuna sína um kvöldið og ég tók mér bara dvd. Hann kom nú samt bara frekar snemma heim og svo komu Daniel og nokkrir vinir hans og hlusta á "musik" í STÓRU nýju hátölurunum hans Daniels sem hann er NB! rosalega stoltur af ;)
Þetta eru svona týpískir hátalarar sem stelpur bara hreinlega skilja ekki og þar með talið ég hehe...

Þeir eru sko HUGE!! Ná mér upp í mitti en jú jú hann má nú alveg eiga það að "soundið" í þeim er gott. Æj strákar stundum hehe... ;)

En eftir að þeir voru búnir að hlusta á "We are the champions" NOKKRUM sinnum og syngja ofur hátt og falskt með haha... Þá fóru þeir á djammið.

Á föstudaginn fórum við sköturnar í dýragarðinn :) Verð nú bara að segja að þetta er rosalega flottur garður hérna :)
Tók okkur nokkra tíma að rölta um og skoða öll dýrin í rosa fínu veðri. Ég dó nú samt reyndar næstum á leiðinni í garðinn :(
Við hjóluðum eins og sannir danir gera... og haldiði að það hafi ekki bara verið lööööööööng brekka upp að blessaða garðinum :O Og ég í mínu líka fína formi úfff.... en það tókst :)

Hún Gitte Hoemann hringdi líka í mig á föstudaginn og bauð mér að koma í atvinnuviðtal á mánudaginn á spítalann hér í Álaborg :) bara einhver skúringavinna en ég er samt voða spennt og vona svo innilega að ég fái þessa vinnu!!!!!
Gengur heldur ekki lengur að vera svona fötluð í þessu tungumáli!!! Ætla sko ekki að vera þessi óþolandi útlendingur sem skilur ekki neitt og kann ekki að tala!!

Ég er samt búin að reyna eins og ég get að bjarga mér. Reyni alltaf að tala bara dönsku í búðum og svona ;)

Jæja vona að þetta sé nóg fyrir ykkur í bili ;)
kossar og knús heim :)

4 ummæli:

Nafnlaus sagði...

Þetta var aldeilis fínt blogg Dísa Blö :) Gott að þú skulir hlusta á okkur ;) heheh...

Nafnlaus sagði...

Æ gíróseðlarnir eru farnir í póst en ég afturkalla bara handrukkarana :-) En þú veist að það skylda að blogga a.m.k. annan hvorn dag og svo vil ég fá myndir af bjórskiltinu takk pent!
Dagmar

Lilja sagði...

bumbuföt?? er eitthvað sem þú þarft að segja mér, á msn kannski? þú varst búin að lofa að gera það ekki í gegnum internetið!!!!
gaman að fá blogg frá þér stelpa
sakna þín

Ásdís sagði...

hahaha.... ég lofa!! sko engar bumbufréttir frá mér neitt á næstunni!!!!!!!
Sakna ykkar allra líka :)