fimmtudagur, 5. júní 2008

5.júní Grundlagsdag i Danmark

Já haldiði að það sé ekki bara frídagur í dag. Eins konar þjóðhátíðardagur víst. Sá nú samt enga skrúðgöngu en alveg helling að fínum fánum út um allt og já ALLAR búðir lokaðar. Sæi það í anda heima að það væri allt lokað. Sjensinn sko...

En mér finnst nú bara allt í lagi að loka á svona dögum. Þar sem ég er nú samt ennþá íslendingur þá þurfti ég nú samt alveg bráðnauðsynlega að fara út í búð hehe... Fann EINA sem var opin og sem betur fer er hún nú bara í sömu götu og við búum.
Jámm skellti mér í FAKTA til að versla salat. Ég hefði nú bara verslað þetta blessaða salat í gær ef ég hefði vitað að það væri frídagur í dag.

Í gær, áður en ég vissi að það væri frídagur í dag, þá var ég sko búin að plana daginn í dag. Hafði sko stór plön.... Ætlaði sko að kaupa mér ferskan ananas og jarðaber mmmmmm.... Dreymdi nánast um þessa girnilegu ávexti í nótt ;)
En þau plön stóðust nú ekki þar sem FAKTA var ekki alveg að standa sig í grænmetis og ávaxtadeildinni. Ég færi þessi plön þá bara yfir á morgundaginn og skelli mér í FØTEX.

Það býr einhver illa steiktur gaur í götunni okkar. Hann er með svona gjallarhorn (heitir það það ekki annars? ) já og í það talar hann út og inn. Skammar fólk fyrir að fara yfir á rauðu ljósi og svona og svo virðist vera innbyggt í þetta tæki löggusírena.
Verð nú að segja að hann er nánast eins og klipptur út úr þætti með fóstbræðrum!!! Kíkið og þá skiljiði hvernig hann er ....





Jæja vona að það sé allt gott að frétta að heima :)

Bið að heilsa í bili ...

3 ummæli:

Nafnlaus sagði...

Heyrðu! Fáðu þér svona gjallarhorn líka og svaraðu manninum... ertu ekki að tala um að þú hafir lítið að gera?

Ásdís sagði...

Jú kannski ég geri það bara! hann er í alvöru að tala við fólk á götunni. Sko fram eftir nóttu!!! Ótrúlegur gaur!! Svo er líka voða fyndið hvað danir þurfa alltaf að syngja á leiðinni heim af djamminu :) fyndnir þessir danir hehe...

Nafnlaus sagði...

stórfurðulegt fólk þarna í baunalandinu ;) ...svona verður þú ef þú verður þarna lengi hahaha...
Er gunni orðinn svona pínu skrítinn? Eða er hann þessi gaur með gjallarhornið??!! :O