miðvikudagur, 7. maí 2008

Nr.1

Já þetta er fyrsta Álaborgarabloggið, þó að tæknilega séð sé ég ekki flutt ennþá ;) Ákvað að búa til lítið blogg svo fólkið okkar hér heima geti fylgst með okkur í Álaborginni.

Gunni er nú bara að njóta sólarinnar og sumarsins sem er víst komið í Baunalandi á meðan sitjum við hér í rigningunni og vonum að vorið sé alla vegana á næsta leiti svo ekki sé minnst á sumarið. Ég ætla samt að vera voða vond og óska þess að það verði rigninga sumar hér á Íslandi hehe... Er ekki alltaf gott veður í DK ef það er leiðinlegt veður hér??

En alla vegana þá er áætluð brottför mín þann 2.júní 2008 kl.7.45 tek svo innanlandsflug frá Köben til Álaborgar kl.16.15 og lendi stundvíslega (vonandi!!) hjá Gunna kl.17 :)
Þangað til verður sko nóg að gera hjá mér....

Vélhlutafræði lokpróf næsta þriðjudag (13.maí) og svo sjúkrapróf í stærðfræðigreiningu einhver tíman á bilunu 26.-30.maí. Vona að það verði nú bara 26. þá hef ég nokkra daga til að pakka og knúsa fólk áður en ég fer.

Ég bið bara að heilsa í bili :)
Já og btw ég kann EKKERT á þetta blogspot dæmi!!!

2 ummæli:

Nafnlaus sagði...

jájájájájá alveg nauðsynlegt að hafa svona blogg þegar fólk flytur frá manni. Langar bara að segja að það verður ógeðslega gott sumar hér heima ;) hef góðar og áreiðanlegar heimildir!!!

Lilja sagði...

Líst vel á þig að vera komin með blogg, reyndar ekkert annað í boði fyrst þú þarft endilega að fara að flytja... en ertu ekkert stressuð að fara að búa í útlöndum án mín? þú hefur aldrei gert það áður:) haha

en verð ég ekki að commenta á hverja einurstu færslu hjá þér, svona eins og þú ert svo góð að gera hjá mér?;)