Ég átti leið inní Hafnarfjörð í dag sem er nú kannski ekki frá sögu færandi nema það að í hvert skipti sem ég fer INN Í Hafnarfjörð, þ.s keyri ekki bara í gegn, þá villist ég!!!
Ég hitti samt alltaf fyrir rest á réttan stað en hvernig mér tekst það veit ég ekki. ALLTAF þegar ég þarf að fara á St.Jósepsspítala þá villist ég, ALLTAF!! Ég hef nú ansi oft þurft að fara þangað í gegnum tíðina en ALDREI hefur mér tekist að staðsetja hann í kollinum á mér! Eina sem ég næ að tengja nálægt honum er húsið hennar Þórunnar frænku.
Í dag þurfti ég að ná í mömmu einmitt á þennan blessaða spítala. Ég keyrði bara í róleg heitum af stað með húsið hennar Tótu frænku í huga. Þegar ég beygði inní blessaða bæinn fauk þessi hugsun úr kollinum á mér!!! Og ég ákvað að fara aðra leið. EKKI góð hugmynd ef miðað er við fyrri reynslu.
Anyways.... Ég var viss um að núna rataði ég sko bara víst. Beygði þarna upp einhverja götu, keyrði næstum niður OJJJHHHH MAAAAAS (ruslakall á Ölmu máli), flaug þarna yfir hverja hraðahindrunina á fætur annarri en NEI enginn spítali eða merking um að spítala væri að finna í nágrenninu.
Ég hélt áfram..... Loksins sá ég hann!!! En bara bakið á honum :/ og hann var umkringdur húsum en engin gata virtist liggja að honum. Ég var við það að gefast upp, en ekki gat ég skilið mömmu bara eftir þannig að ég keyrði áfram.
Á endanum sá ég skilti sem á stóð St.Jósepsspítali og benti inn í götu. Vúhúúú... ég beygði inn götuna. Þetta var bara venjuleg íbúðargata!!!!! En þar sem ég gat hvergi snúið við ákvað ég að keyra áfram, gatan sveigðist og beygðist í allar áttir (furðulegt alveg!!). Þegar ég LOKSINS sá fyrir endann á henni blasti við mér ...

St.Jósepsspítali í allri sinni dýrð ;)
Ég skil ekki Hafnarfjörð!!!!
En ætli ég rati næst??? Spennandi.....
3 ummæli:
ja eg er alveg sammala þer, hafnafjörður er ekki staðurinn til að villast. :) best ad finna eina leið og halda sig viða hana ;)
mér finnst þú snillingur að hitta á hann fyrir rest! átt hrós skilið :D
hæhæhæ :) langaði að segja hæ þó að þú sitjir akkúrat núna við hliðiná mér ;)
Skrifa ummæli