fimmtudagur, 15. maí 2008

Enginn karíus og enginn Baktus :)

Jámm ég er með tennur eins og krakki... Engin hola og engin skemmd :) Tannlæknirinn minn var voða ánægður með mig.

Ég var samt handviss um það um daginn að ég væri sko með þvílíka tannpínu já núna væri sko komið að því!! Ég væri POTTÞÉTT bara að fara að missa allar tennurnar. En síðan gleymdi ég þessu hehe... Dramadrottningin ég ;)

Ég fór áðan og fjárfesti í miðum á Palla :) Próflokadjamm háskólanna á morgun á NASA það verður sko stuuuuuuuuð!!!!!! :)
Austurvöllurinn var fullur af fólki að sóla sig og líka fullur af fullu fólki. Rónarnir alveg að fíla veðrið greinilega, sátu þarna og drukku sitt spritt. Verð nú að segja að það er til rosalega mikið af furðulegu fólki og það virðist safnast saman í 101 Rvk.

Ég þarf nú að fara að hella mér í lesturinn aftur, þó að ég sé engan vegin að nenna því í þessu æðislega veðri. En ég kemst víst ekki undan því....

Lilja þú ert sko að missa af hörku stuði á morgun :( get næstum því lofað þér að það verður skemmtilegra en síðast hahahaha....


Góða helgi :)

3 ummæli:

Lilja sagði...

Takk fyrir þetta Ásdís, ég veit ég vissi af miklu, en maður verður víst að velja og hafna í lífinu og núna kýs ég að velja peninga... svo ég hafi eitthvað til að eyða í alexandriu:)

og ég vona að það verði meira stuð hjá þér á morgun, en var á síðasta djammi.... það var svo slappt að það er varla hægt að kalla það djamm!!!

Nafnlaus sagði...

uuu eruði að tala um þegar þið tvær kíktuð á RÚNTINN?!?! hahahahaha..... :D

Nafnlaus sagði...

æ gleymdi... til hamingju Ásdís með fallegu tennurnar þínar ;)