Hvernig stendur á því að þegar maður fer til heimilislæknis FÁRVEIKUR ,og þeir hafa ekki græjur, getu né kunnáttu til að ganga 100% í skugga um hvað sé að, að þeir vísi manni ekki til sérfræðings eða hreinlega sendi mann uppá spítala þar sem réttar græjur og réttir læknar eru??
Ég fór til læknis í HAUST nokkrum sinnum út af því að mér hreinlega leið bara e-ð illa var alltaf e-ð asnaleg. Ok kannski erfitt að skera úr um af hverju ég var asnaleg þegar ég gat ekki beint bent á " já hér er mér illt ".
En nokkru seinna versnaði mér og já fór að pissa blóði, ekki skemmtileg reynsla það.
En nokkru seinna versnaði mér og já fór að pissa blóði, ekki skemmtileg reynsla það.
Ég fór á heilsugæsluna, hugsanlega mistök að fara ekki beint uppá Lansa, en þar var ég látin blæða í glas og engdist um af kvölum. Læknirninn fékk SJOKK þegar ég lét hana fá glasið en engu að síður þá sendi hún mig bara heim með nokkra daga skammt af pensilíni.
Síðan þá hefur þetta alltaf verið að poppa upp annað slagið og ég alltaf fengið bara pensilín. Ég er búin að vera eins og ég sagði áðan ASNALEG í allan vetur. Alltaf þreytt og líður e-ð illa :(
Um daginn sagði mamma bara hingað og ekki lengra og pantaði tíma fyrir mig hjá sérfræðingi. Ég fór til hans og vildi hann strax eftir stutt viðtal fá að spegla mig.
Speglunin var svo gerð í dag og vitið menn.....
Ég er búin að vera með blöðrubólgu í ÁR!!! Þannig að núna á ég að vera á úber sterku pensilíni í MÁNUÐ og ef það er ekki nóg þá þarf ég að fara í aðgerð.
Afleiðingar þess að vera með blöðrubólgu svona lengi eru ekkert djók!!! Svo ekki sé minnst á þau óþægindi sem ég hef þurft að þola.
Ég spyr.... AF HVERJU VAR ÉG EKKI SEND TIL SÉRFRÆÐINGS STRAX!!!?????
urrr... hvað ég er ekki sátt :(
4 ummæli:
helvítis heimilislæknar! Maður er bara reiður með þér :(
Vá ég er ekki búin að vera nógu dugleg að kommenta hjá þér... þú ert greinilega of´góður bloggari, allavega virkari en ég... hér með biðst ég afsökunar, ég lofa að vera betri að kommenta... En dísus kræst heimilislæknar eru fávitar!!!!
láttu þér batna;)
Ertu ekki að grínast með heimilislækninn !!! Spurning um að fá sér nýjan heimilislækni...
En vonandi ferðu nú að ná þér, alveg kominn tími til ! En hvernig er hægt að láta manneskju vera með blöðrubólgu í ár án þess að gera neitt við henni ??? Sjitt hvað það getur ekki verið þægilegt !
Já og Word Verification hjá þér er alveg ferlega "snúið" :Þ
ojh ég fékk bara HROLL Í GEGN :/ ... ég hef 2x fengið blöðrubólgu og síðast um daginn og ég var að DREPAST í bæði skiptin en það varði bara í nokkra daga ! VÁ HVAÐ ÉG FINN MEST TIL MEÐ ÞÉR - að hafa verið með þetta ógeð í ÁR ..ómægod!!!!! elsku krútt !!
veit ekkert hvað ég á að segja !! bara finn endalaust til með þér sætabrauð!!! það ætti að taka svona lækna og snúa þá úr hálslið or some ! hafa fengið læknaréttindin sín úr cheeriospakka greinilega!!!!!
Skrifa ummæli