laugardagur, 6. desember 2008

MTV projekt

Það styttist og styttist í skiladag!!! Pínu stress í gangi en ég held að þetta muni allt smella saman í næstu viku. Held að það eigi frekar eftir að vera erfitt að fara ekki yfir 80 blaðsíðna takmarkið heldur en hitt. Ótrúlegt aukaefni sem fylgir svona verkefni.
Ég hlakka alveg ótrúlega mikið til að skila þessu inn ... Úfff er alveg komin með nóg af spekúleringum um fyrirbura og öllu sem því fylgir. Held að ég viti orðið of mikið um þetta!!
Samt sem áður mjög spennandi verkefni og ég er mjög ánægð með þetta val okkar :)

Við skelltum okkur í smá jólaverslunarleiðangur í gær. Náðum að kaupa nokkrar jólagjafi og smá jolaskraut í íbúðina :) Maður verður nú að skreyta smá!
Það er orðið rosa fínt hjá okkur og jóló :)

Afmælisgjöfin hans Gunna mætti líka í gær :) Ég keypti á hann jólaföt og ég held að það hafi nú bara tekist vel! Hann er alla vegana rosa sætur í þeim :)

Næsta vika verður strembin enda þarf verkefnið að KLÁRAST! skiladagur er á mánudaginn eftir viku. Þá tekur við annað "verkefni" (process analyse) sem á að skilast 18.des en við höfum ákveðið að reyna að klára það strax mánudaginn 15. sitja við það eins lengi og við þurfum. Þá hef ég 2 daga til að pakka og þrífa íbúðin og svona stúss sem þarf að klárast áður en við förum HEIM :)

Við fáum líka lítinn stúf í heimsókn til okkar næsta föstudag sem ætlar að fá að gista hjá okkur :) Það verður bara gaman að fá lítinn gest!

Jæja nóg blaður í bili

~ 12 ~

6 ummæli:

Nafnlaus sagði...

hvaða litli stúfur er það? :)

kv. Jóhanna

Ásdís sagði...

Litli frændi hans Gunna, 2ára krútt. Mamma hans og pabbi eru að fara í Julefrokost þannig að hann fær að gista :)

Nafnlaus sagði...

Já ætlaði að segja það... hélt að þú værir að tala um The Stúf - gat ekki verið enda karlinn ekki komin til byggða hér hvað þá að flækjast til Álaborgar

Nafnlaus sagði...
Þessi athugasemd hefur verið fjarlægð af stjórnanda bloggs.
Lilja sagði...

fyrir hvað stendur MTV project? getur varla verið MTV sjónvarpstöðin;) hehehe annars veit maður aldrei!:p

Ásdís sagði...

hehe... MEDICINSK TEKNOLOGIVURDERING ;) svaka spennandi!