Við fengum íbúðina okkar afhenta í dag og það er enginn smá munur að sjá hana svona parketlagða :) Við erum ekkert smá ánægð og hlakkar mikið til að flytja. Ætlum að leigja okkur bíl á laugardaginn og flytja allt draslið þá. Fórum bara með einn kassa og eina tösku í dag um leið og við náðum í lyklana.
Okkur vantar samt mikið að kaupa okkur einhverja hirslu, helst skáp eða kommóðu. En við reddum því bara seinna :) Númer eitt er bara að flytja og skila þessari íbúð sem við erum í núna.
Ég byrjaði líka að vinna í dag :) Var hrikalega kvíðin úfff.... Átti að mæta kl.17 til að fá lykla og svona en það endaði með því að ég þreif allt með manninum. Á að mæta aftur á morgun og þrífa með honum en svo á mánudaginn verð ég bara ein.
Þetta eru tvær tannlæknastofur sem ég á að þrífa og mér líst bara mjög vel á þetta :) Gekk líka bara vel að skilja dönskuna og tala, eða hann virtist alveg skilja þessi fáu orð sem ég sagði við hann hehe...

Skelli inn nokkrum myndum þegar ég blogga næst :) vonandi bara núna um helgina en ég veit samt ekki alveg hvernig verður með netið hjá okkur á nýja staðnum.
Kyss og knús heim :)
2 ummæli:
hæ sæta - til lukku með nýju íbúðina sem og ammælið ykkar um daginn :D yndislegt !! vona að allt haldi áfram að vera svona frábært :* .. knúsknús!
knúúúúús!!!!!!!!! :)
Skrifa ummæli